
Tvö orð frá blómatíma íslensku kauphallarinnar rifjast upp, mikið notuð af greiningardeildum og viðskiptablaðamönnum.
Leiðrétting. Þegar gengi hlutabréfa lækkaði. Loks urðum við svo fyrir hinni endanlegu leiðréttingu.
Þroskamerki. Líka notað þegar hlutabréfaverð lækkaði, merkingin er sú að markaðurinn væri svo þroskaður að hann þyldi leiðréttingu (sjá að ofan).