fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Vondir siðir úr borgarstjórn

Egill Helgason
Miðvikudaginn 29. apríl 2009 12:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er athyglisvert hversu margir þeirra pólitíkusa sem hafa þegið stóra styrki í prófkjörum koma úr borgarstjórninni í Reykjavík.

Hún er gróðrarstía fyrir þetta. Þaðan koma hinir vondu siðir að talsverðu leyti. Og það á ýmislegt fleira eftir að koma úr kafinu.

Í borgarstjórninni eru stjórnmálamennirnir í nálægð við eiginlegt úthlutunarvald; þeir geta deilt út ýmsum gæðum, lóðum og byggingarétti – þeir sitja í stjórn Orkuveitunnar og Faxaflóahafna sem eru stórfyrirtæki.

Þess vegna getur verið sniðugt fyrir fjármálamenn, verktaka og ýmsa spekúlanta að kaupa aðgang að borgarfulltrúum.

Þeir sem stjórnmálamenn sitja á Alþingi eru miklu fjær því að geta deilt út eiginlegum verðmætum. Þess vegna er kannski ekki ástæða til að styrkja þá með jafn háum fjárhæðum – en sumir taka reyndar með sér hina vondu siði úr borgarstjórn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“