
Það kemur dálítið einkennilega fyrir sjónir að Mörður Árnason skuli hafa orðið fyrir miklum útstrikunum í kosningunum.
Eiginlega alveg óskiljanlegt. Mörður er fastur á skoðunum sínum, en hann er ekki grunaður um að hafa þegið óhreina peninga.
Gestur Guðjónsson setur fram kenningu um þetta:
Að stuðningsfólk Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur hafi strikað Mörð út til að koma í veg fyrir að hún færðist niður listann.