fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Að tapa fjötrunum

Egill Helgason
Miðvikudaginn 29. apríl 2009 17:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt sinn var talað um þá sem hefðu engu að tapa nema fjötrunum.

Hér er athyglisverður pistill um landbúnaðinn.

Íslenski landbúnaðurinn er reyrður í fjötra ofstjórnar og miðstýringar.

Hvergi á byggðu bóli leggur ríkið fram jafn mikinn hlut til landbúnaðar.

Bændaforystan og alls konar milliliðir hafa hreiðrað um sig í þessu kerfi, það er alið á hræðslu og vanmetakennd meðal bænda.

Metnaðurinn er ekki meiri en að dæla kjöti inn í afurðarstöðvar og síðan inn í stórmarkaði – sem reyndar eru líka í því að terrorísera bændastéttina.

Íslenskur landbúnaður á ótal tækifæri. Landið er hreint. Bústofnar eru lausir við sjúkdóma. Heimaframleiðslu ætti að efla til muna. Við eigum að fá að vita hvaðan maturinn er kominn, kjötið og ostarnir.

Við getum orðið glæsilegt matvælaframleiðsluland.

Þetta snýst ekki endilega um aðild að ESB, heldur að frumkvæði og athafnafrelsi fái notið sín í þessari atvinnugrein.

Það er löngu kominn tími til – og reyndar er tækifærið nú, á þessum tímamótum í sögu þjóðarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“