
Margir skauta býsna létt framhjá því að Framsókn samþykkti aðildarviðræður við ESB á flokksþingi sínu í janúar.
Með miklum meirihluta.
Sú kenning hefur komist á kreik að þetta hafi verið gert með svö ströngum skilyrðum að það útiloki aðildarumsókn.
Það er fjarri sanni.
Framsóknarmaðurinn Gestur Guðjónsson rekur þetta í grein á vef flokksins.
Þarna eru sjálfsagðar kröfur um yfirráð yfir auðlindum, úrsagnarrétt og um að íslenskur landbúnaður verði viðurkenndur sem heimskautalandbúnaður.
Ekkert meira en eðlilegt væri að fara með í aðildarviðræður.