
Hér er mál sem margoft hefur verið rætt um á þessari síðu, hvernig bankarnir felldu krónuna:
„Guðmundur Ólafsson segir að þær upplýsingar sem nemendur hans hafi safnað saman vegna annaverkefnis síns sýni að gengishrunið megi skrifa á reikning bankanna. Hann nefnir einnig að þýska tímaritið Der Spiegel hafi birt grein s.l. sumar þar sem sagt er frá þessu máli.
„Það er augljóst að bankarnir voru að taka stöðu gegn þjóðinni með þessum gjörðum sínum,“ segir Guðmundur og bendir á að hann og Sigurður G. Tómasson hafi margrætt þetta mál í þáttum sínum á Útvarpi Sögu frá síðasta sumri en að enginn annar fjölmiðill hafi tekið málið upp á þessum tíma.“