
Alisdair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti í gær fjárlögin fyrir næsta ár.
Í þeim felst meðal annars að þeir sem eru með árstekjur upp á 150 þúsund pund greiða 50 prósenta hátekjuskatt.
150 þúsund pund er reyndar ansi há fjárhæð, um það bil 25 milljónir íslenskra króna.
Þeir sem eru með tekjur yfir 100 þúsund pundum fá ekki persónuafslátt.
Hækkaðir verða skattar á bensín, tóbak og áfengi.
Gert er ráð fyrir að breska hagkerfið skreppi saman um 3,5 prósent á þessu ári.
Annars má lesa efnisatriði frumvarpsins hérna.