
Ein leið út úr kreppu er reyna að auka umsvif í hagkerfinu með framkvæmdum. Þetta var til dæmis gert í Bandaríkjunum í kreppunni miklu, frægasta dæmið eru virkjanirnar miklu sem kenndar eru við Tennessee Valley Authority.
Við Íslendingar höfum ekki þennan möguleika, einfaldlega vegna þess að við höfum ekki aðgang að fjármagni til að ráðast í framkvæmdir af þessu tagi.
Önnur leið er að prenta peninga.
Við eigum heldur ekki möguleika á því. Það er heldur enginn skortur á íslenskum krónum, bankarnir eru fullir af þeim. Það er erlendur gjaldeyrir sem okkur vantar og hann prentum við ekki.
Því miður höfum við aðeins eina leið út úr kreppunni. Það sem blasir við er niðurskurður – og hugsanlega skattahækkanir.