
Ég er að velta fyrir mér hvort það væri betra fyrir flokkana að auglýsa mjög lítið – eða alls ekki.
Maður er að velta því fyrir sér að kjósa einhvern flokk, er næstum kominn að niðurstöðu.
Svo sér maður auglýsingu frá honum og þá hættir maður snarlega við.
Þannig virka auglýsingarnar á mann þessa dagana.