
Er þetta rétt greining hjá Guðna Ágústssyni, að ríkisstjórnin hafi sprungið á stjórnmálafundinum á Selfossi í gærkvöldi.
Þegar þeir tókust á um ESB Björgvin G. Sigurðsson og Atli Gíslason.
Annars finnst manni að það hljóti að vera að Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. hafi rætt hvernig þau ætli að ná málamiðlun í Evrópumálum.
Ef svo er væri auðvitað réttast að þau skýrðu frá því.
Ætla Vinstri græn að halda áfram andstöðu sinni við aðildarviðræður?
Ætlar Samfylkingin að standa föst á því að aðildarumsókn sé forsenda stjórnarsamstarfs?
Eða er annar flokkurinn að blöffa – og þá hvor þeirra?
Nema þá að Guðni hafi rétt fyrir sér – stjórnin starfi ekki áfram?
Ef svo er hlýtur stefna í stjórnarsamstarf annað hvort Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks (því varla samþykkir Sjálfstæðsflokkurinn aðildarviðræður heldur), stjórn Samfylkingar, Framsóknar og Borgarahreyfingarinnar sem gæti hugsanlega náð naumum meirihluta eða einhvers konar minnihlutastjórn…