fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Fáum dögum fyrir kosningar

Egill Helgason
Mánudaginn 20. apríl 2009 22:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er möguleiki á að Vinstri græn verði stærri en Samfylkingin? Og Steingrímur geti þá gert kröfu til að verða forsætisráðherra?

Það virðist ekki vera óhugsandi – fjöldamargir kjósendur eiga eftir að gera upp hug sinn. Flestir sem ég hitti segjast ekki vita hvað þeir ætla að kjósa.

Samfylkingin kýlir allt í einu á mjög harða afstöðu í Evrópumálum. Þetta er greinilega flokkslínan síðustu dagana fyrir kosningar, þá væntanlega til að reyna að trekkja evrópusinnaða kjósendur frá Sjálfstæðisflokknum.

Þetta virkar óneitanlega ansi tækifærissinað, sérstaklega þegar bankamálaráðherra síðustu ríkisstjórnar fer að setja Evrópu sem skilyrði um stjórnarsamstarf við VG.

Hvað ætlar flokkurinn að standa fast á því?

Sjálfstæðisflokkurinn er í sífelldu tjóni. Forysta flokksins virðist vera mjög óviss um hvaða skilaboð hún eigi að senda frá sér. Þau breytast frá degi til dags. Það þýðir lítið að ráðast á sendiherra ESB sem segir að ekki sé hægt að taka upp evruna í gegnum Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Það er spurning hvar botn Sjálfstæðisflokksins liggur – er hann 30 prósent, 25 prósent, eða jafnvel ennþá lægri?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“