
Allt í einu virðist vera kominn einhver vindur í Evrópuumræðuna, viku fyrir kosningar.
Menn héldu lengi vel að þetta yrði eitt aðalkosningamálið.
Nú hefur tvíhöfða nefndin, undir forystu Illuga Gunnarssonar og Ágústs Ólafs Ágústssonar. skilað áliti sínu.
Hún klofnar í fimm hluta.
Það sætir mestum tíðindum að Samfylkingin skilar sameiginlegu áliti með nokkru helstu samtökum atvinnulífsins – SI, SVÞ, SAF, VÍ og ASÍ.
Samhliða er að magnast upp umræðan um að Ísland eigi engan annan kost en að leita skjóls hjá ESB.