
Hinn gallharði sjálfstæðismaður Bjarni Kjartansson hefur oft lagt orð í belg á þessum vef.
Nú ber svo við að Bjarni hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í þessum kosningum.
Hann skrifar um þetta á blogg sitt – og ítrekar það reyndar í athugasemdum hér á vefnum.
Ástæðan er afstaðan sem tekin var til fiskveiðistjórnunarkerfisins á nýafstöðnum landsfundi.