fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Stjórnarskráin er sáttmáli fólksins

Egill Helgason
Þriðjudaginn 17. febrúar 2009 19:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Ármannsson sagði að svo virtist sem gengið væri út frá því að þjóðin kysi kjána til þings en eintóma snillinga væri kosið til stjórnlagaþings.

Segir á vef Ríkisútvarpsins. Birgir er á móti stjórnlagaþingi. Þessi orð hans endurspegla það.

Stjórnmálamönnum hefur mistekist að gera breytingar á stjórnarskránni. Síðasta stjórnarskrárnefnd var skipuð miklu þungaviktarfólki en lagði upp laupana eftir árangurslaust starf árið 2007.

Stjórnmálamennirnir hafa reynst ófærir til verksins og spurning er líka hvort þeir eigi endilega að sjá um það.

Því stjórnarskrá hefur meðal annars þann tilgang að setja þeim mörk.

Góður íhaldsmaður, Jóhann J. Ólafsson stórkaupmaður, hefur hugsað mikið um stjórnarskrármál. Hann skrifaði til dæmis á vef fyrri stjórnarskrárnefndar:

Stjórnarskráin er samfélagssáttmáli landsmanna um það hvernig eigi að stjórna landinu.  Hvað stjórnvöldum leyfist og  alveg sérstaklega um  það hvað þeim leyfist ekki.

Hún á ekki að vera sáttmáli á milli stjórnmálaflokka eða stjórnmálamanna.

Stjórnarskráin er ekki sáttmáli á milli stjórnmálamanna og þjóðarinnar. 

Stjórnarskráin er sáttmáli fólksins. Stjórnmálamennirnir eru hluti af þeim sáttmála.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“