fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Eyjan

Víðernin, hálendisvegur, Byrgismál, Breiðavík, póstlistar, taugaveiki

Egill Helgason
Þriðjudaginn 6. febrúar 2007 22:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stærstu ósnortnu víðerni í Evrópu er orðin einhvers konar mantra. Vei þeim sem kann ekki að meta þau, eða lýsir hrifningu sinni ekki nógu sterkt.

Ég vil leggja veg yfir hálendið.

Viltu eyðileggja stærstu ósnortnu víðerni í Evrópu?

Úbbs. Best að segja ekki meira.

— — —

Fyrst þegar Byrgismálið kom upp varð mér aðeins á í messunni. Ég rifjaði upp umræður í þinginu og fjölmiðlum og taldi að stjórnmálamenn úr öllum flokkum og kjaftastéttirnar bæru einhvers konar samábyrgð í málinu. Það var málflutningur af þessu tagi sem Geir Haarde forsætisráðherra notaði í þinginu í gær. En hann er ekki alveg að virka.

Ég vissi ekki um allar skýrslurnar sem höfðu verið gerðar um Byrgið, allar viðvörunarbjöllurnar sem höfðu hringt án afláts – alla ráðherrana og ráðuneytismennina sem höfðu skellt skollaeyrunum við þeim.Þessir menn vissu betur en kusu að þegja, kannski af ótta við að pólitískar fýlubombur spryngju í andlitið á þeim. Það heitir yfirhylming.

Þingmenn og kaffihúsaspekingar sem töluðu um Byrgið á sínum tíma höfðu enga vitneskju um þetta. Þessar upplýsingar eru fyrst að koma upp á yfirborðið núna. Þess vegna var ræða Geirs ekki annað en útúrsnúningur.

— — —

Heimurinn þróast vonandi í þá átt að verða ögn sívílíseraðri, að minnsta kosti hér á Vesturlöndum. Helsti mælikvarði á siðmenningu er hugsanlega hvernig er komið fram við börn, fatlað fólk og lítilmagna. Það er ekki svo langt síðan að þótti ekki svo mikið tiltökumál að vera vondur við börn. Breiðavíkurmálið er hörmulegt dæmi um það – næstum eins og það sé sprottið úr sögu eftir Dickens.

Nú lifum við í samfélagi þar sem baráttan stendur frekar um að vernda börnin fyrir öllu ruslinu sem verið að troða upp á þau. Ég trúi því ekki að Breiðavíkurnar séu víða á Íslandi eins og einn viðmælandi Kastljóssins sagði.

— — —

Ég hef verið skráður á tvo póstlista undanfarin misseri. Báðir voru nokkuð gagnlegir til að byrja með, stundum voru þar lífleg skoðanaskipti, stundum var bara verið að auglýsa fundi. Svo fylltist annar af ruslpósti svo ekki varð við neitt ráðið. Ég lét skrá mig af honum.

Nú er ég líka búinn að láta afskrá mig af hinum sem gengur aðallega út á að hópur sagnfræðinga er að skrifast á um hver þeirra sé vanmetnastur.

— — —

Kári læknir var að sjúkdómsgreina föður sinn sem hefur verið með einhverja pest. Fyrsta sjúkdómsgreiningin hljóðaði upp á "búlgu (bólgu) með dvergasandi". Dvergasandur er kverkaskítur á máli barnsins, svo þetta er sennilega ekkert alvarlega en hálsbólga.

Seinni sjúkdómsgreiningin var ískyggilegri – taugaveiki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?