fbpx
Þriðjudagur 19.ágúst 2025
Eyjan

Eru óperur leiðinlegar?

Egill Helgason
Föstudaginn 16. febrúar 2007 20:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef eitthvað getur orðið banabiti íslensku óperunnar þá er þá er það ef hún setur upp kassastykki eins og Carmen eða La Bohème. Eitthvað sem fólkið vill sjá. Þess vegna er sett upp obskúr ópera eftir frekar leiðinlegt tónskáld, Stravinsky, búinn til á hana titill sem fælir fólk frá – Flagari í framsókn – en síðan spenna menn greipar og vonast til að verði helst ekki nema svona tvær sýningar.

Annars gæti óperan hreinlega farið á hausinn.

Jæja. Ég meina þetta ekki alveg. Hef reyndar blendnar tilfinningar til óperu. Chaplin kallaði hana feitt, borgaralegt og vemmilegt listform. Hann var líka alinn upp í fátækrahverfi. Það er mikið um gervimennsku og gervitilfinningar í óperum.

Þegar Ingmar Bergman gerði kvikmynd eftir Töfraflautunni var hann spurður að því hvers vegna hann væri að þessu – óperur væru svo leiðinlegar.

Það er rétt, sagði Bergman, því verður ekki á móti mælt. Þær eru leiðinlegar.

En samt gerði hann kvikmyndina.

— — —

Annars ráðgerir Gunnar Birgisson enn að byggja óperu í Kópavoginum. Gunnar er framkvæmdamaður – lætur sér ekki muna um að grafa í sundur Heiðmörk svo hún lítur út eins og eftir fyrri heimstyrjöldina – og honum ætti ekki að verða skotaskuld að byggja eins og eitt óperuhús. Sagan segir reyndar að íslenskur auðjöfur verði þar með í spilinu – komi til með að leggja stórfé í bygginguna.

Þá getum við Björn Bjarnason kannski farið að láta okkur dreyma um að horfa og hlusta á Parsifal í allri sinni dýrð á íslensku sviði. Björn segist vera að hlusta á Wagner á sjúkrabeði. Eins öfugsnúið og það kann að virðast, þá eru Wagnersóperur eiginlega einu óperur sem mér þykja skemmtilegar núorðið. Jæja – skemmtilegar er kannski ekki rétta orðið. En þriðji og síðasti kaflinn í Parsifal er einhver voldugasta tónlist sem hefur verið samin.

Nietzsche, forðum aðdáanda Wagners, varð svo mikið um kristindóminn í Parsifal og áhersluna á fórnfýsi að hann hljóp heim að skrifborði sínu og skrifaði ádeiluritið Nietzsche contra Wagner. Fannst gamli meistarinn vera orðinn meyr. Nokkrum árum síðar gaf heilabúið í Nietzsche sig endanlega og hann var út úr heiminum síðustu æviárin.

Það boðar hins vegar ekki gott fyrir Wagner á Íslandi að ég fór á konsertuppfærslu á þriðja kafla Parsifals hjá Sinfóníunni í haust. Salurinn var hálftómur og almennt stemmingsleysi. Eins gott að þetta er ekki í stóra salnum í tónlistarhúsinu, hugsaði maður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?