fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Eyjan

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Eyjan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 16:01

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins hefur svarað gagnrýni Sigurðar Inga Jóhannssonar, sem tók við af þeim fyrrnefnda sem forsætisráðherra og felldi hann í kjölfarið úr formannsstóli Framsóknarflokksins, með því að vísa í umdeilda setningu úr bandarískri kvikmynd en setningin þykir sumum gera lítið úr fólki sem glímir við þroskaraskanir.

Sigurður Ingi ávarpaði flokksþing Framsóknarflokksins fyrr í dag en arftaki hans í embætti formanns flokksins verður kjörinn á morgun.

Samkvæmt frétt RÚV af ræðunni varaði Sigurður Ingi við uppgangi popúlisma og sagði Framsóknarflokkinn þurfa að vera róttækari, vera ófeimnari við að gagnrýna vald og valdhafa og beita sér í auknum mæli fyrir breytingum. Flokkurinn mætti ekki vera varðhundur kerfisins og ýta þannig undir stöðnun. Popúlistar nýti sér þetta og boði afturhvarf til fortíðar en um leið breytingar og þannig nái þeir eyrum kjósenda.

Þarna er Sigurður Ingi augljóslega að vísa til Miðflokksins og aukinna vinsælda hans í könnunum en fyrir flokksþingið hafði hann kallað flokkinn hægri öfgaflokk sem ætti litla samleið með Framsóknarflokknum.

Kvikmynd

Sigmundur Davíð svarar þessari gagnrýni í Facebook-pistli en segist ætla að gera það með ítarlegri hætti eftir flokksþing Framsóknarmanna. Hann segir flokkinn sem hann áður leiddi vera að stefna í sömu átt og stjórnmálaflokkur sem má muna fífil sinn fegurri:

„Fyrir kurteisissakir ætla ég að láta vera að bregðast við sérkennilegri (og síbreytilegri) sjálfsréttlætingu fráfarandi formanns Framsóknarflokksins þar til eftir flokksþing þeirra. En ef ég ætti að veita vinum mínum í þeim flokki einhver vinsamleg ráð gæti ég þó lagt til að framsóknarmenn samþykki ekki drög að stefnu flokksins óbreytt. Eins og leikarinn Robert Downey Jr. orðaði það nokkurn veginn í einhverri kvikmynd: „Never go full VG”.“

Umrædd kvikmynd heitir Tropic Thunder og er frá 2008. Hún fjallar um hóp leikara sem er að leika í stríðsmynd en lendir síðan í alvöru hernaðarátökum. Í myndinni leikur hinn heimsfrægi Robert Downey Jr. ástralskan leikara sem leggur afskaplega mikið á sig fyrir hlutverk sín og gerir sitt allra besta til að verða að þeim persónum sem hann leikur. Í samtali við kollega sinn, í myndinni, leggur hann þó áherslu á að þetta eigi ekki fyllilega við þegar leika eigi fólk með þroskahamlanir. Í samtalinu kemur fyrir umrædd setning en hún hefur verið umdeild þar sem í henni er notað enskt orð yfir þennan hóp, orð sem þykir niðrandi í garð fólks sem þarf að lifa með þroskahömlun:

„Never go full retard.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kristinn bæjarstjóraefni Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi

Kristinn bæjarstjóraefni Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar: Mafíur og meiðyrði

Björn Jón skrifar: Mafíur og meiðyrði
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Miðaldir eru að baki á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Miðaldir eru að baki á Íslandi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Alma Möller: Fráflæðisvandi 20 ára gamalt hugtak – hillir undir lok en tekur tíma

Alma Möller: Fráflæðisvandi 20 ára gamalt hugtak – hillir undir lok en tekur tíma
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík

Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stórkaup eða stórsala á landsréttindum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stórkaup eða stórsala á landsréttindum