fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Eyjan

Bush grætur, hvalkjöt, skrítinn dómsdagur, könguló

Egill Helgason
Föstudaginn 12. janúar 2007 19:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvaða kenndir vekja myndir af Bush grátandi? Samúð? Varla? Ekki þegar maður hugsar um afleiðingarnar af gerðum hans, ónýtt land þar sem áður ríkti einræði en þó einhvers konar stöðugleiki, fjölda látinna þar, heilan heimshluta sem er í uppnámi, skammsýnina, heimskuna, hrokann. Það er eiginlega enginn sem talar af virðingu lengur um þennan mann – og þess vegna er kannski ekki nema von að hann gráti.

Kannski er hann aumkunarverður, nei annars, svo valdamikill maður er það ekki. Í raun skynjar maður ekki annað en reiði í hans garð; að vera kosinn í slíkt embætti og fara svo hrikalega illa með það. Bush er ef til vill misheppnaðasti Bandaríkjaforseti fyrr og síðar – þeir sem voru viðlíka slæmir ríktu áður en Bandaríkin urðu stórveldi og gátu því ekki unnið svo mikinn skaða. Enn á að bæta gráu ofan á svart með því að senda 20 þúsund dáta í viðbót til Íraks og hafa í hótunum við Íran og Sýrland.

Það eru fleiri sem hafa glatað mannorðinu. Taka menn eftir því að enginn minnist lengur á Dr. Condolezzu Rice sem kandídat í embætti Bandaríkjaforseta. Ekki bötnuðu horfurnar hjá henni þegar hún var grilluð fyrir utanríkismálanefnd bandaríska senatsins í gær.

— — —

Merkilegt er að ekki skuli hafa selst svo mikið sem eitt gramm af hvölunum sem veiddust í haust. Stóð kannski aldrei til að setja þetta á markað?

Annars er ég með ágæta hugmynd: Einfaldlega að bjóða upp á hvalkjötið í flugi til og frá landinu. Flugvélamaturinn er hvort sem er ónýtur. Þetta yrði ódýrt fyrir flugfélögin – en hefði líklega þá afleiðingu að allir ferðamenn myndu láta sig hverfa.

— — —

Hér er lýsing á fáránlegasta heimsendi allra tíma. En maður er hræddur um að þeir sem setja þetta fram taki það alvarlega – nema þá vanti meiri peninga til að halda áfram að rannsaka fyrirbærið. Telji sig, svo að segja, vera að komast á spenann.

En þetta afbrigði af dómsdegi er semsagt svona:

Túristar frá Vesturlöndum fara með lyfið tamiflu til Asíu vegna þess að þeir eru hræddir við fuglaflensu. Flensan brýst út, þeir pissa og kúka lyfinu í klósettin og það berst út í náttúruna í tonnatali. Tamiflu drepur bæði veirur og bakteríur – sumar þeirra eru nauðsynlegar fyrir fugla og önnur dýr, verja þau meðal annars gegn sóttkveikjum.

Þá eru komnar upp aðstæður til að aftur brjótist út pest, enn banvænni en sú fyrri, bæði fyrir dýr og menn. Og þá dugir ekki að taka tamiflu.

Á maður að hafa áhyggjur af þessu eða á maður að láta nægja að hafa áhyggjur af fluglaflensunni? Eða á maður að sleppa því að hafa áhyggjur?

— — —

Um daginn voru fréttir af manni sem fann torkennilega könguló heima hjá sér. Ég var eiginlega búinn að gleyma því, en ég fann líka furðulega könguló nú eftir áramótin. Var ekkert að hugsa út í þetta, tók hana bara með rifrildi af eldhúsrúllunni og henti í ruslið. Passaði samt að verða ekki beinlínis valdur að dauða hennar. Vona að hún sé ekki að fjölga sér þar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðmundur segir sig frá formennsku SFS – Tæpir 3 mánuðir frá kjöri

Guðmundur segir sig frá formennsku SFS – Tæpir 3 mánuðir frá kjöri
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Alvöru leiðtogi

Björn Jón skrifar: Alvöru leiðtogi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stefán segir Jóhanni Páli til syndanna – „Umhverfisráðherra ber sér á brjóst“

Stefán segir Jóhanni Páli til syndanna – „Umhverfisráðherra ber sér á brjóst“