fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Eyjan

Baugsmál, Mogginn, Sylvía Nótt

Egill Helgason
Fimmtudaginn 11. maí 2006 18:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baugsmenn hafa farið mjög klaufalega að í mótmælum sínum gegn umfjöllun í Kastljósinu. Í fyrsta lagi var enginn að taka eftir umfjölluninni, hún fór fram á mesta góðviðrisdegi ársins – það kveikti í rauninni enginn á þessu fyrr en Baugur fór að kvarta. Í öðru lagi er ekki gott að tapa kúlinu með þessum hætti. Viðbrögðin eru fátkennd.

Á sama hátt hefði Hreinn Loftsson átt að láta orð Sveins Andra Sveinssonar um mögulega refsingu í dómsmálinu sem vind um eyru þjóta. Hann gerði ekki annað en að ljá þeim vængi sem þau hafa flogið á síðan.

Hitt er líka ljóst að Baugsmenn hafa fjallað um ákærur á hendur sér í fjölmiðlum fram og til baka. Þeir hafa skrifað og talað, fengið innlenda og erlenda álitsgjafa til að tjá sig – og stundum beitt fjölmiðlaveldi sínu. Þeir geta ekki ákveðið einhliða að ekki skuli rætt um málið í fjölmiðlum – eftir að hafa sjálfir rekið það á þeim vettvangi.

Nú skilst manni að þetta hafi vakið athygli í Danmörku þar sem menn bíða spenntir eftir útkomu hins nýja Nyhedsblad. Þar spyrst þetta svona út: Þeir vilja ekki bara ráða þessum sextíu prósentum sem þeir stjórna í íslenskum fjölmiðlum, heldur líka öllum hinum fjölmiðlunum.

— — —

Þáttur Morgunblaðsins er mjög skrítinn. Enginn fjölmiðill getur verið jafn klikk og Mogginn. Hann fjallar ekki efnislega um Baugsmálið sjálfur – birti reyndar ákærurnar orðréttar á mörgum blaðsíðum- en prentar svo dag eftir dag nákvæma endursögn af Kastljósinu. Og sýnir deilunum í kringum það sérkennilega mikinn áhuga. Þetta er skrítin blaðamennska.

— — —-

Í gær skrifaði ég að Reykjavík gæti ekki talist fögur borg. Hollvinur síðunnar sendi mér eftirfarandi orðsendingu:

Davíð Oddsson segir stundumþá sögu að þegar hann tók á móti erlendum gestum sem borgarstjóri hafi þeir oftar en ekki horft skilningsríkum augum á hann og sagt:

"Reykjavík hlýtur að hafa orðið fyrir svakalegu sprengjuregni í heimsstyrjöldinni."

Hann mótmælti ekki alltaf.

— — —

Kapítalið þekkir engin landamæri og er ekki þjóðhollt. Sjaldan hefur þetta sést betur en í framferði lyfjafyrirtækisins Actavis sem selur lyf á tíföldu verði á Íslandi miðað við það sem það gerir í Danmörku.

— — —

À propos Sylvía Nótt: Það er kvartað undan því að hún syngi "fuck". Kannski er það ekki svo slæmt. Hugsanlega verða allir farnir að syngja "fuck" í Evróvision eftir nokkur ár. Það væri eftir öðru.

Guðlastið er kannski verra. Ég setti mig í spor guðhræddrar grískrar konu sem hlustar á þetta – og leist ekki á blikuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum