fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Eyjan

Uppgjör við arfleifð Davíðs

Egill Helgason
Mánudaginn 1. maí 2006 14:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein áhrif brotthvarfs Davíðs Oddsonar úr stjórnmálum eru sú að nú stígur fram hópur manna á sjötugs- og áttræðisaldri sem í raun lét Davíð kúga sig. Hann hlóð þeim í fínar stöður, þeir fóru burt á góðum launum, létu lítið á sér bera, hugsuðu sitt, en voru í raun bældir niður af þessum sterka stjórnmálamanni.

Nú tínast þeir aftur inn í umræðuna einn af öðrum; Jón Baldvin, Jón Sigurðsson, Þorsteinn Pálsson, Steingrímur Hermannsson. Það hlýtur að vera von á Svavari Gestssyni – raunar segir orðrómur að hann hafi fjarstýrt framboði VG frá Skandinavíu.

Þetta er ágæt þróun. Allir hafa þessir menn mikið til málanna að leggja. Hin yngri kynslóð stjórnmálamanna hefur að mörgu leyti valdið vonbrigðum.Það er líka að verða mikil breyting. Sjálfstæðismenn eru í óða önn að varpa arfleifð Davíðs fyrir borð.

Eftir nokkur ár verður flokkurinn orðinn Evrópusinnaður. Samskiptin við Bandaríkin virðast hafa verið tómt rugl – þau voru mestanpart í höndunum á sérvöldum skósveinum Davíðs. Hann hleypti ekki öðrum að. Þeir klúðruðu málinu stórkostlega.

Í sumar verður öllu lokað á Vellinum. Leikskólunum, útvarpinu, tölvupóstinum. Þá fara menn að horfa æ meira til Evrópu. Allir sjá líka að það er orðið fullreynt með íslensku krónuna. Þar er lítt byggjandi á pólitískum arfi Davíðs sem var svo evrófóbískur að hann líkti evrunni við gjaldmiðilinn í Norður-Kóreu (won) í þætti hjá mér fyrir nokkrum árum.

Það fer ekki ýkja hátt en uppgjörið við Davíð eru ein mestu tíðindin í stjórnmálum þessi misserin. Sjálfstæðisflokkurinn fjarlægist hann óðfluga. Í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík býður hann upp á stefnu sem getur varla talist annað hreinræktaður sósíaldemókratismi. Hvernig sem kosningarnar fara er sigurvegarinn jafnaðarstefnan. Á sama tíma á Samfylkingin í vandræðum enda var orðinn vani hennar að skilgreina sig út frá Davíð.

— — —

Hér er heimasíða þar sem hægt er að kaupa hlægilega gjaldmiðla, til dæmis frá Norður- Kóreu,Mongólíu og Íslandi svo nokkuð sé nefnt.

— — —

Nýjar auglýsingar ASÍ sem meðal annars hanga á ljósastaurum á Laugaveginum eru rosa flottar. Þarna sér maður ljóslifandi hvað verkalýðsbaráttan skilaði okkur miklu. Það var hún sem kom böndum á kapítalismann – gerði líf vinnandi fólks bærilegt, skapaði kjörin.

Nú er ný barátta að fara í gang. Hnattvæðingin er að sumu leyti góð hugmynd, en að öðru leyti fjarska vond. Hún hefur tilhneigingu til að gera fámennar stéttir auðmanna ríkari. Þeir telja sig ekki skulda neinum neitt. Hika ekki við að flytja störf og fjármagn milli landa.

Þegar hnattvæðingin fer að hola kjör vinnandi fólks að innan er aftur þörf fyrir verkó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum