fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Eyjan

Fjölmiðlafrumvarp, kosningar, flugvöllur

Egill Helgason
Mánudaginn 24. apríl 2006 19:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú hefur fjölmiðlafrumvarp verið lagt fram og þingmenn geta haldið áfram að þrasa um Ríkisútvarpið og fjölmiðla meðan allt er í kalda koli í efnahagsmálunum. Miðað við hvað málið er seint fram komið sætir nokkurri furðu að Þorgerður Katrín vonist til að það verði samþykkt fyrir vorið. Það er varla nokkur von til þess. Hins vegar gæti stjórnarandstöðunni orðið að ósk sinni að fá að ræða fjölmiðlalög samhliða Ríkisútvarpsfrumvarpinu.

Annars hélt ég að væru sveitarstjórnarkosningar eftir mánuð og varla nema nokkrir dagar eftir til þingloka. En kannski skynja þingmenn enga spennu fyrir kosningarnar – fremur en aðrir.

— — —

Fylgið reytist smátt og smátt af Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík í skoðanakönnunum. Það kemur ekkert sérstaklega á óvart. Manni hefur alltaf þótt ólíklegt að hann nái meirihluta í prósentvís, þótt nokkrar líkur séu á að hann geri það vegna þess hversu atkvæði hinna flokkanna nýtast illa.

Styrmir Gunnarsson er mjög meðvitaður um þetta, hann er sífellt að skima eftir samstarfsflokki fyrir Sjálfstæðismenn í borginni. Hann hefur pælt í Framsókn, Frjálslyndum en nú síðast í Vinstri grænum.

Styrmir spyr beinlínis í Staksteinum í dag: "Skyldu Vinstri grænir horfa með hýru auga til Sjálfstæðisflokks?"

Annars eru stefnuskrár allra framboðanna í borginni svo félagshyggjulegar að manni sýnist að hver sem er eigi að geta starfað saman – hví þá ekki Sjálfstæðisflokkur og VG?

Félagsleg yfirboð eru grunntónn kosningabaráttunnar.

— — —

Myndband Framsóknarmanna um flugvöll á Lönguskerjum hleypir af stað hrepparígnum á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki skortur á stjórnmálamönnum hér sem hugsa smátt og stutt. Oddvitar sveitarfélaganna í kringum Reykjavík koma í fjölmiðla fussand og sveiandi. Kannski eru sumir bara að skapa sér samningsstöðu, hafa borð fyrir báru, eins og það heitir.

Hugmyndin um Lönguskerjaflugvöll er stórskemmtileg eins og Hrafn Gunnlaugsson setti hana fram fyrir nokkrum árum – byggða á tillögum Trausta Valssonar. Auðvitað á að skoða hana vel. Jafnvel þá hugmynd að þetta gæti orðið millilandaflugvöllur með tíð og tíma. Slíkt gæti jafnvel styrkt "samkeppnishæfni" Reykjavíkur.

Ekki síðri hugmynd er flugvöllur á Bessastaðanesi þar sem er nóg pláss. Ágúst Einarsson stakk upp á þessu fyrir nokkrum árum. Þá þótti einhverjum óviðeigandi að forsetinn byggi í jaðri flugvallar. Á móti kom fram sú tillaga að hann myndi flytja sig og setjast að í Viðey.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum