fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Eyjan

Jól við Oxford Street

Egill Helgason
Þriðjudaginn 5. desember 2006 14:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vont var að missa af Silfrinu en nú sit ég með kvíðahnút í maganum á kaffihúsi við Oxford Street og finnst að ég þurfi að fara að kaupa jólagjafir. Traffíkin er brjálæðisleg og allir að rekast utan í alla…

Er nú kominn í gamalkunnar stellingar að skrifa á netið á kaffihúsi. Sit á Starbuck´s sem er nánast við Oxford Street. Ekki rólegasti staður í heimi. Oxford Street er hreint brjálæði fyrir jólin, fólkið treðst um götuna og er aðallega í því að rekast hvað utan í annað. Mannlífsflóran er reyndar stórkostleg, hér ægir saman öllum kynþáttum. Ég tel víst að ekki haldi allir jól.

Það er nóg af jólaljósum en einhvern veginn eru þau dálítið tacky, skortir innileikann – getur maður sagt kærleikann. Maður þarf mikla rósemd hugans til að geta gert nokkuð af viti hér. Aðeins ofar er reyndar Marylebone Village með litlum sætum búðum, veitingahúsum og miklu hlýlegra viðmóti – líklega skemmtilegasta hverfi í London.

Er með kvíðahnút í maganum. Nógu var vont að missa af Silfrinu. En það er fleira sem hefur dottið upp fyrir. Jólagjafainnkaupin sem áttu að framkvæmast hér hafa orðið að engu. Ég hef ekki komist til að kaupa góðmetið í Fortnum´s & Mason og hér blasir við mér hið mikla vöruhús Selfridges´s. Veit að kona mín vonar að ég komist þangað inn áður en ég fer. Úff. Best að reyna. Úrvalið er svo milljónfalt meira en á Íslandi. Við höfum stór verslunarhús en ekkert sérstaklega fjölbreytt úrval.

Tíminn er frekar naumur, ég flýg heim í kvöld og svo ég mæti í Ísland í dag á morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Tók bara utan um stefnuvottinn og þakkaði honum fyrir að koma með bréfið

Reynir Traustason: Tók bara utan um stefnuvottinn og þakkaði honum fyrir að koma með bréfið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk