fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Eyjan

Breytingar

Egill Helgason
Fimmtudaginn 9. nóvember 2006 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og menn sjá hafa orðið miklar breytingar hér á Vísi. Ég tel að þetta muni vera til bóta, gamla útlitið var þunglamalegt og með því fylgdi talsvert af efni sem var orðið úrelt, efnisþættir sem ég nennti ekki að uppfæra. Nú held ég einungis eftir dálknum sem hefur yfirskriftina Pistlar, en þá mun ég að vanda setja inn svo gott sem daglega.

Brotasilfur fær einnig að lifa áfram en þar skrifa ég væntanlega stuttar greinar um bækur, tónlist og annað menningartengt.

Hið vinsæla tenglasafn verður áfram hér á síðunni þótt það hafi dottið út í morgun. Ég hef orðið var við að margir nota það á ferð sinni um vefinn. Reyni líka að uppfæra það eins samviskusamlega og ég get, taka út dauða tengla og bæta inn nýjum, sérstaklega nú í prófkjörsvertíðinni.

Silfrið verður svo auðvitað áfram í Veftívíinu. Unnið er í að gera það þægilegra í notkun. Margir eru steinhættir að horfa á svona þætti í sjónvarpi. Fjölmiðlanotkunin er að breytast verulega. Samt halda menn áfram að mæla sjónvarpsáhorf með gamla laginu.

Mér finnst mikilvægt að eldra efni sé aðgengilegt hér. Þó ekki sé nema til þess að hægt sé að reka mig á gat með einhverju sem ég skrifaði fyrir mörgum árum og er í algjöru ósamræmi við það sem ég er að segja núna. Best væri náttúrlega ef hægt væri að nálgast greinar frá þesssum rúmlega þremur árum sem ég hef verið hér á Vísi – gamla efnið frá árum mínum á Strikinu er víst kirfilega lokað og læst.

Njótið vel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun – Ísland og Evrópusambandið

Könnun – Ísland og Evrópusambandið