fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Eyjan

Da Vinci Code, skólagjöld, bílastæði

Egill Helgason
Fimmtudaginn 25. maí 2006 21:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var kannski borin von að hægt væri að gera mynd eftir Da Vinci Code, bók sem byggir á kenningu sem er nánast samhengislaust þrugl, en tekst þó á einkennilegan hátt að vera spennandi. Kirkjan þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu – mýstíkin í bók Dans Brown verður svo gegnsæ í kvikmyndinni að hún virkar eins og hallærislegar kellingabækur. Sem hún auðvitað er. Fólkið sem flykkist með bókina undir hendi í Louvre, St. Sulpice eða Westminster Abbey á eiginlega bágt.

Þetta er ein af þeim myndum þar sem maður er farinn að líta á klukkuna eftir hálftíma, stroka út gömul skilaboð úr símanum, athuga hvort maður geti fundið nýja skjámynd. Semsagt afar langdregin. Kannski er helsti vandi leikstjórans, Rons Howard, hvað hann fylgir sögunni nákvæmlega – hann hefur vísast ekki þorað öðru af ótta við að móga hinn stóra lesendahóp.

Ég segi ekki að Howard hafi breytt gulli í blý – það var aldrei neinn sérstakur eðalmálmur í bókinni. Svo græða þeir ábyggilega heilan helling á myndinni. En þetta er frekar slappt. Hanks er voða vandræðalegur, veit ekki hvernig hann á að vera, Audrey Tautou algjörlega óeftirminnileg – maður myndi ekki þekkja hana þótt maður rækist á hana á leiðinni út úr bíóhúsinu – en stórleikarinn Ian McKellen slær þessu öllu upp í grín, lætur bókstaflega eins og fífl.

Þeir ættu að hýrudraga hann fyrir að grafa undan alvörunni í myndinni.

— — —

Það er ægilegt hvað stjórnmálaflokkarnir hérna eru hræddir við umræðu um skólagjöld. Þau eru alveg sjálfsagt mál á háskólastigi. Það á ekki að taka mark á stúdentum sem mótmæla þeim, þeir eru bara í hagsmunabaráttu. Bestu háskólar í heimi innheimta skólagjöld. Þau veita nemendum aðhald, vinsa burt stúdenta sem er ekki alvara með náminu, gera skólana efnaðri – svo er hægt að nota hluta þeirra til að veita góðum námsmönnum styrki.

Á sama hátt er sjálfsagt að taka bílastæðagjald af stúdentum jafnt og öðru fólki. Ef þeir hafa efni á að reka bíla, þá hafa þeir efni á að borga í stæði. Umræða um að ekki megi taka upp stöðumæla við skóla er ekki annað en skrum.

Geysilegt landflæmi við Háskóla Íslands fer undir bílastæði. Hvernig verður þá umhorfs við Háskólann í Reykjavík þegar hann byggir í Vatnsmýri – hvað fer mikið land þar undir stæði?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Trump leitar í smiðju höfundar hrunsins

Orðið á götunni: Trump leitar í smiðju höfundar hrunsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“