fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Eyjan

Hvar er frjálshyggjan?

Egill Helgason
Mánudaginn 19. desember 2005 13:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stundum er rétt að skoða frasana sem fólk notar. Á heimasíðu Ögmundar Jónassonar skrifar einhver S. Pálsson og segir að hér séu engin miðjustjórnmál heldur vaði allt í óheftum kapítalisma, miðjan sé bara gríma sem nýfrjálshyggjan setur upp. Svo horfir maður aðeins í kringum sig – hvernig birtist nýfrjálshyggjan hér á Íslandi?

Jú, það er vissulega búið að einkavæða bankana, en bankar komust í einkaeigu hér árum og áratugum á eftir Evrópu, að meðtalinni hinni sósíaldemókratísku Skandinavíu. Margir hafa auðgast vegna þessarar einkavæðingar, en lánakjör almennings hafa llíka stórbatnað. Gömlu ríkisbankarnir voru raunar einhver stærsta svikamylla sem hefur verið til á Íslandi, gengu aðallega út á að rýja fólk inn að skyrtunni með vaxtaokri meðan peningum var útdeilt til gæluverkefna og fyrirtækja sem voru í náðinni hjá stjórnmálamönnum.

Hið sama má segja um símann – það þekkist hvergi núorðið að ríkið eigi símafyrirtæki, enda alveg ástæðulaust vegna mikillar samkeppni í símaþjónustu. Síminn var heldur engin góðgerðarstofnun meðan ríkið átti hann, heldur sannkölluð okurbúlla.

— — —

Á sama tíma tíðkast hér mikil miðstýring í heilbrigðiskerfinu sem færist frekar í aukana – bygging hátæknispítala vísar veginn í þá átt. Umfang velferðarkerfisins hefur farið vaxandi, líkt og fjölgun öryrkja ber vott um. Menntakerfið fram að háskólastigi er nánast eingöngu í höndum hins opinbera. Við rekum öflugt ríkisútvarp sem líklega mun frekar styrkjast með nýjum lögum, sinfóníuhljómsveit, þjóðleikhús, óperu. Ríki og borg ætla að fara að byggja risastórt tónlistarhús.

Svo er landbúnaðarkerfið í fast í viðjum ríkisafskipta, ofurtolla og hafta – hlutfallslega ver íslenska ríkið miklu meiru til landbúnaðar en hið alræmda Evrópusamband. Langstærsta framkvæmd síðari tíma á Íslandi, Kárahnjúkavirkjun, er svo í höndum ríkisfyrirtækis og á ábyrgð ríkisins. Hugmyndafræðilega er hún einhvers staðar á mörkum ríkiskapítalisma og áætlanabúskapar.

Hvar er þá öll nýfrjálshyggjan?

— — —

Rétt er það hjá Össuri að David Cameron fær gott start í pólítíkinni. Hann hefur hins vegar ekki sannað sig enn svo nokkru nemi. Hélt fræga ræðu í Blackpool, þótt enginn muni reyndar hvað hann sagði þar. Var við það að brjóta þingsköp í fyrsta fyrirspurnatíma sínum í þinginu. Annars hefur Cameron það sér helst til framdráttar að hann þykir eins og snýttur út úr nefinu á Tony Blair. Virðist vel upp allinn og nokkuð öfgalaus.

Cameron leggur áherslu á að hann sé grænn í skoðunum, hann er jákvæðri í garð hælisleitenda en Michael Howard, er ekkert endilega á því að að lækka skatta. Hann leitar inn á miðjuna. Um leið skilur hann gamla kjósendur Íhaldsflokksins eftir á einskismannslandi; millistéttarfólkið og smáborgarana sem er kjarnafylgi flokksins. Gamli og afkáralegi majórinn, Ian Duncan-Smith, var miklu rökréttari fulltrúi þess fólks.

Líklega verður Cameron best lýst sem blairista; hann er skilgetið afkvæmi New Labour. Undir stjórn hans gæti Íhaldsflokkurinn orðið enn óskiljanlegri en hingað til.

— — —

Ég las ensku blaði um daginn að bæklingar sem eru bornir í hús nái til um það bil 0,10 prósenta viðtakenda. Þar kom fram að þetta hlutfall hefði samkvæmt könnunum lækkað úr 0,15 prósentum og þar með væri grundvellinum kippt undan slíkri bæklingaprentun – hún borgaði sig bara alls ekki.

Umhugsunarefni fyrir þá sem eru að hella þessu rusli inn um lúguna hjá manni á hverjum degi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Valdaflokkarnir gáfu landsbyggðinni langt nef

Sigmundur Ernir skrifar: Valdaflokkarnir gáfu landsbyggðinni langt nef
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Arfleifð Egils í Borgarnesi

Óttar Guðmundsson skrifar: Arfleifð Egils í Borgarnesi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin