fbpx
Miðvikudagur 07.maí 2025
Eyjan

Feðralús eða útlensk lús

Egill Helgason
Fimmtudaginn 6. janúar 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru reglulegir lúsamiðar í leikskólanum hans Kára. Enn höfum við ekkert fundið í ljósum lokkunum – erfitt að hugsa sér að svona kvikindi geti dulist þar. Keypti samt lúsakamb og sjampó til vonar og vara. Einhver hvíslaði að mér að þetta væri ekki gamla frónska lúsin, feðralúsin – sú sem var mælt á forntunguna – heldur suðrænt afbrigði, smærra og harðara, líklega komið með ferðamönnum frá Spáni. Ég veit annars ekkert um það. Kannski er þetta bara rasismi?

— — —

Stöð 2 var með frétt um að ekkert hefði ennþá orðið af því að skaffa landsbyggðarþingmönnum aðstoðarmenn eins og samþykkt var við síðustu kjördæmabreytingu. Það var aldeilis þörf á að rifja þetta þjóðþrifamál upp. Um leið kom reyndar fram að eitthvað af peningunum sem áttu að fara í þetta eru þegar komnir í umferð hjá flokkunum – eða það skildist mér á viðtali við Einar Kr. Guðfinnsson.

Annars er þetta einhver mesta þarfleysa í sögu Alþingis – og er þó af nógu að taka. Þingmenn eru meira eða minna í fríi allt árið, flestir þeirra eru mjög verklitlir – það er verið að búa til vinnu fyrir þá með því að senda þá út og suður í alþjóðlegt samstarf. Þegar þeir eru heima eru þeir svo að kokka upp mál eins og að setja fánann í þingsal, breyta þjóðsöngnum og banna auglýsingar á óhollum mat. Það þarf enga aðstoðarmenn í þessháttar.

— — —

Reikningurinn fyrir höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur er kominn upp í 4,2 milljarða króna. Þarna hlýtur að úa og grúa af verkfræðingum, en samt gleymdist að gera ráð fyrir loftræstingu í húsið. Minnir mann á salernin sem vantaði í Versali eða járnabindinguna sem skorti í Hallgrímskirkju.

Orkuveituhúsið hefur farið hátt í fjörutíu prósent fram úr kostnaðaráætlun. Forstjóri Orkuveitunnar er vanur að gera lítið úr hlutunum – segir að þetta sé kostnaður á við meðalgrunnskóla. Þarna inni mun vera geysilega fín líkamsræktarstöð og mötuneyti á við besta restaurant. Húsið var reist á ystu mörkum bæjarins af ástæðum sem hafa ekki fengist skýrðar – þvert ofan í stefnu borgarstjórnar um þéttingu byggðar. Hví var það ekki bara sett við hliðina á virkjuninni á Hellisheiði?

— — —

Ég hitti tónlistarmann um daginn sem sagði mér að það yrði æ algengara að setja söngvara í gegnum eitthvað sem mér heyrðist hann kalla "autopitch". Þetta er tölvubúnaður sem leiðréttir falska tóna í söng – í raun er nóg að söngvarinn rauli lagið bara einu sinni, svo sér autopitchið um að laga allt. Margir upptökustjórar nenna ekki að eyða löngum tíma í að taka upp söng og þess vegna nota þeir þetta. Það sparar peninga þegar verið er að verksmiðjuframleiða músík. Þannig er hægt að gefa út plötu með 500 kallinum svokallaða, Idolstjörnunni Jóni, án þess að heyrist falskur tónn. Fórnarkostnaðurinn er að þetta verður frekar gelt og sjarmalaust. Ég hitti Ellenu Kristjánsdóttur upp á Stöð 2 um daginn og hún sagði að hún myndi ekki nota þetta – söngur hennar á sálmaplötunni er semsagt jafn engilhreinn og hann hljómar.

— — —

Hví kemur snögglega upp úr dúrnum að stjórnarskrárnefndin á aðeins að skoða 1., 2. og 5. kafla stjórnarskrárinnar? Var ekki búið að segja að allt væri undir? Össur segir að þarna séu það skipanir Sjálfstæðisflokksins sem gildi. Af hverju er Davíð þá bara ekki sjálfur í nefndinni – væri það ekki eðlilegast í staðinn fyrir að setja í gang eitthvert brúðuleikhús? Var bara blekking – eftir allt sem á undan er gengi – að ætti að tala um þjóðaratkvæðagreiðslur og beinna lýðræði? Er tilgangurinn eftir allt bara að reyna að þjarma að forsetanum?

Ég bendi á góðan pistil sem birtist um þetta á Deiglunni í dag. Höfundurinn er ungur lögfræðingur, Arnar Þór Stefánsson. Hann telur að ákvæði um þjóðaratkvæði myndu eiga heima í 3. eða 4. kafla stjórnarskrárinnar. Lesið með því að smella hér.

— — —

Bendi ennfremur á umfjöllun um Stuðmannamyndina Í takt við tímann sem má finna hérna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Diljá Mist Einarsdóttir: Umræðan um sjávarútveg stjórnast af tilfinningum – verðum að vanda okkur, líka auglýsingarnar

Diljá Mist Einarsdóttir: Umræðan um sjávarútveg stjórnast af tilfinningum – verðum að vanda okkur, líka auglýsingarnar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Meira um grátskýrslu forstjóra Síldarvinnslunnar – Samherji á fyrirtækið en ekki lífeyrissjóðirnir

Orðið á götunni: Meira um grátskýrslu forstjóra Síldarvinnslunnar – Samherji á fyrirtækið en ekki lífeyrissjóðirnir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kolbrúnu ofbýður framkoma Vilhjálms – „Aldrei man ég eftir svo grófu dæmi“

Kolbrúnu ofbýður framkoma Vilhjálms – „Aldrei man ég eftir svo grófu dæmi“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Bandaríkin eru svona nærri því að verða einræðisríki

Bandaríkin eru svona nærri því að verða einræðisríki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Bjarnason hæðist að Svandísi – „Enginn getur tekið tapið frá flokksformanninum – sama hvað hlaðvarpssamtölin verða mörg“ 

Björn Bjarnason hæðist að Svandísi – „Enginn getur tekið tapið frá flokksformanninum – sama hvað hlaðvarpssamtölin verða mörg“ 
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Ótti íhaldsaflanna við vit og vísindi

Sigmundur Ernir skrifar: Ótti íhaldsaflanna við vit og vísindi