fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025

Raunveruleikastjarna sökuð um að nota andlitsgrímur á óviðeigandi hátt

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 14. apríl 2020 09:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjarna hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að búa til „bikiní“ úr andlitsgrímum. Andlitsgrímur eru af skornum skammti vegna kórónuveirunnar og þurfa heilbrigðisstarfsmenn þeim á að halda meira nú en nokkurn tíma áður.

Vanessa Sierra vakti úlfúð fylgjenda sinna á Instagram þegar hún deildi mynd af sér í bikiníi sem var búið til úr þremur andlitsgrímum. Tvær andlitsgrímur hylja brjóst hennar og ein andlitsgríma hylur kynfæri hennar.

https://www.instagram.com/p/B-tpxF1FtFd/

Með myndinni skrifaði hún: „Flestir henda andlitsgrímunum sínum í ruslið. Við endurnýtum þær.“ Hún auglýsti einnig í leiðinni OnlyFans síðuna sína, þar deilir hún nektarmyndum af sér gegn greiðslu.

Vanessa er með um 135 þúsund fylgjendur á Instagram. Fjölmargir sökuðu hana um að sóa andlitsgrímunum.

„Þannig… fólk getur ekki fundið andlitsgrímur því Vanessa er að nota þær sem bikiní,“ skrifaði einn netverji við myndina.

„Heilbrigðisstarfsfólk er að deyja vegna þess að þeim skortir hlífðarbúnað, þvílík sóun,“ skrifaði annar.

„Mjög umdeild færsla á mjög viðkvæmum tíma,“ skrifaði einn aðdáandi hennar.

Vanessa svaraði fyrir sig í kommentakerfinu og sagði að þetta væru notaðar andlitsgrímur.

„Ég er bara að reyna að slá á létta strengi í erfiðum aðstæðum. Flestir henda sínum andlitsgrímum, ég endurnýtti mínar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Glódís varð eftir uppi á hóteli – Bjartsýni fyrir leik tvö

Glódís varð eftir uppi á hóteli – Bjartsýni fyrir leik tvö
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.