Ástralska leikkonan Rebel Wilson segir að 2020 verði „ár heilsunnar“. Hún segir frá því á Instagram og deilir myndum af sér í íþróttafötum á ströndinni. Greinilegt er að Rebel hefur fylgt heilbrigðari lífsstíl um nokkurt skeið og voru fylgjendur hennar fljótir að fagna árangri hennar.
Rebel segir frá því í færslunni hvernig hún ætlar að reyna að forðast sykur og skyndibitamat á nýju ári. „Hver er tilbúinn að gera jákvæðar breytingar með mér á nýju ári?“ Spyr hún fylgjendur sína.
https://www.instagram.com/p/B6z53A8peHH/
Ótrúleg breyting er á leikkonunni. Það verður gaman að fylgjast með henni í þessu ferðalagi.