fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

IKEA innkallar barnasmekki vegna köfnunarhættu – Á þitt barn þessa smekki?

Fókus
Þriðjudaginn 1. október 2019 09:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

IKEA verslanir um allan heim eru nú að innkalla bláa og rauða MATVRÅ smekki vegna mögulegrar köfnunarhættu.

Smekkirnir sem koma tveir saman í pakka.

IKEA á Íslandi greinir frá þessu á vefsíðu sinni og eru ýmsir fjölmiðlar um heim allan að vekja athygli á málinu.

Verslunin hvetur viðskiptavini sem eiga smekkina, sem eru seldir tveir í pakka, til að taka þá tafarlaust úr notkun og skila þeim í IKEA. Þeir verða að fullu endurgreiddir.

„Vöruöryggi er gríðarlega mikilvægt hjá IKEA. Vörurnar okkar eru prófaðar og standast allar viðeigandi reglugerðir og staðla. Þrátt fyrir það hafa okkur borist tilkynningar um að tölurnar á MATVRÅ smekkum geti losnað af og valdið köfnunarhættu.

IKEA hvetur viðskiptavini sem eiga þessa vöru til að skila henni til IKEA og fá hana endurgreidda að fullu. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu,“ segir á vefsíðu IKEA Íslandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“