fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fljótur að eyða aðgangi sínum á stefnumótaforriti eftir að málið fór í fréttirnar

433
Þriðjudaginn 11. febrúar 2025 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jude Bellingham leikmaður Real Madrid ákvað í gær að eyða út aðgangi sínum á Raya, stefnumótaforriti ríka og fræga fólksins. Það gerði hann eftir að málið komst í fréttirnar.

Málið vakti nokkra athygli en Bellingham er í sambandi við Ashlyn Castro, áhrifavald frá Bandaríkjunum.

Ensku götublöðin vöktu athygli á þessu, en samband þeirra hefur vakið athygli. Enski landsliðsmaðurinn, sem spilar með Real Madrid, á að hafa kynnt Castro fyrir foreldrum sínum á dögunum.

„Ég trúði ekki eigin augum þegar ég sá að Jude væri enn virkur á Raya. Vonum að hann hafi bara gleymt sér,“ segir heimildamaður enska götublaðsins The Sun.

Castro er með um 200 þúsund fylgjendur á Instagram reikningi sínum en hún er áhrifavaldur og hefur einnig starfað sem fyrirsæta.

Eftir að málið fór í fréttirnar var Bellingham fljótur til og hefur lokað aðgangi sínum á Raya.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“