fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Verkfall hjá Bakkavör staðið yfir í þrjár vikur – „Fyrirtækið hefur vel efni á að borga verkafólkinu sanngjörn laun en velur að gera það ekki“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 18. október 2024 18:30

Verkafólkið vill mannsæmandi laun frá Bakkavör sem er í eigu bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verkfall hefur staðið yfir og mikil ólga á meðal starfsfólks Bakkavarar í Spalding í Bretlandi. Formaður verkalýðsfélags segir að Bakkavör hafi vel efni á því að borga sanngjörn laun en velji að gera það ekki.

Matvælafyrirtækið Bakkavör, í eigu bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssonar, rekur stóra verksmiðju í Spalding á austurströnd Bretlands. Þar eru framleidd matvæli fyrir breskar stórverslanir. Þetta er ein af mörgum verksmiðjum félagsins í Bretlandi.

Með stuðning verkalýðsfélagsins

Í frétt breska ríkissjónvarpsins, BBC, kemur fram að um 400 starfsmenn verksmiðjunnar hafi verið í verkfalli síðan 27. september. Starfsmennirnir og verkalýðsfélag þeirra krefjast mannsæmandi launa en talsmenn Bakkavarar segir að fyrirtækið hugi vel að kjörum starfsfólksins.

„Fyrirtækið hefur vel efni á að borga verkafólkinu sanngjörn laun en velur að gera það ekki,“ sagði Sharon Graham, framkvæmdastjóri verkalýðsfélagsins Unite. Samkvæmt verkalýðsfélaginu greiðir fyrirtækið laun rétt yfir lágmarkslaunum. „Þetta er snýst um græðgi en ekki nauðsyn. Fyrirtækið ætti ekki að vera í neinum vafa um að verkalýðsfélagið er með allan fókusinn á störfin, launin og aðbúnað félaga sinna og að Unite styður starfsfólkið heilshugar,“ sagði Graham í ávarpi.

Á þrjú börn og allt að hækka

BBC ræddi við verkakonu að nafni Judita Viegas sem bar fyrirtækinu ekki fallega söguna. „Starfsfólkið á skilið meira en þeir eru að borga okkur,“ sagði hún. „Ég á þrjú börn og þeir segja að verðbólgan sé á leiðinni niður en allt er að hækka í verði. Þannig að ég tel sanngjarnt að við fáum launahækkun jafnt og aðrir.“

Segja verkfallið glórulaust

Forsvarsmenn Bakkavarar segjast hafa boðið lægst launaðasta starfsfólkinu 7,8 prósent launahækkun og öðru starfsfólki 6,4 prósent. Að sögn fyrirtækisins eru um 35 prósent starfsfólks verksmiðjunnar í verkfalli. Hin 65 prósentin, eða um 800 manns séu enn þá starfandi.

Frá verkfallsaðgerðum. Mynd/Unite

Þá var sagt að samið hefði verið við starfsfólk í öllum öðrum verksmiðjum Bakkavarar í Bretlandi, sem eru um 20 talsins.

Sadie Woodhouse, framkvæmdastjóri, sagði að Bakkavör væri fyrir vonbrigðum með verkfallsaðgerðirnar. Almennt séð virði félagið það hlutverk verkalýðsfélaga að verja réttindi verkafólks.

„Hins vegar er engin glóra í því að kalla eftir verkfalli gegn fyrirtæki sem er þegar að sjá vel um fólkið sitt, veitir atvinnu í nærumhverfinu, fjárfestir í þjálfun og veitir launahækkanir umfram verðbólgu,“ sagði hún.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn