fbpx
Miðvikudagur 30.apríl 2025
Fréttir

Segir nýja raðhúsið sitt hafa verið byggt án teikninga og krefst þess að það verði keypt

Ritstjórn DV
Laugardaginn 5. október 2024 18:30

Ráðhús Dalvíkurbyggðar. Mynd: Skjáskot/Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigandi raðhúss á Dalvík sem byggt var 2022 kærði ákvörðun byggingarfulltrúa sveitarfélagsins um að gefa út vottorð um lokaúttekt á húsinu til úskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Fullyrðir eigandinn að húsið sé gallað og að ekki séu til neinar teikningar af því sem þýði að byggingarfulltrúi hafi leyft byggingu þess án þess að nokkrum teikningum hafi verið skilað. Krafðist eigandinn þess að auki að húsið yrði keypt og allur lögfræðikostnaður og kostnaður vegna byggingarmeistara greiddur.

Kæran var lögð fram í september síðastliðnum en vottorð byggingarfulltrúans vegna lokaúttektar var gefið út í nóvember 2022. Aðilinn sem lagði kæruna fram er einn af eigendum hússins.

Eigandinn sagði í kæru sinni að galli hefði komið upp í húsinu og hafi þá komið í ljós að engin gögn séu til staðar fyrir húsið. Ekki verði séð að skilað hafi verið neinum teikningum af húsinu til embættis byggingarfulltrúa til skoðunar og samþykktar. Húsið hafi því verið byggt án samþykktra teikninga. Ekki liggi fyrir þau gögn sem þurfi að vera til staðar svo öryggisúttekt og lokaúttekt fari fram. Sagði eigandinn að ekki liggi ekki fyrir samþykktar teikningar af raflögnum, sérteikningum né pípulögnum fyrir húsið og þar af leiðandi séu úttektir ógildar.

Það kemur ekki fram í úrskurðinum hvaða aðili eigandinn vill nákvæmlega að kaupi húsið.

Voru viðstödd úttektina

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tekur hins vegar ekki afstöðu til þeirrar kröfu eða kröfu um að kostnaður eigandans vegna lögfræðiaðstoðar og byggingameistara verði greiddur þar sem slíkar ákvarðanir falla utan verksviðs nefndarinnar.

Aðeins var því tekin afstaða til lögmætis ákvörðunar byggingarfulltrúans um að gefa út vottorðið um lokaúttekt.

Þeim anga málsins var vísað frá á þeim grundvelli að kæran hefði borist allt of seint. Kærufrestur til nefndarinnar eftir að kæranda hefur orðið kunnugt um ákvörðunina er einn mánuður.  Nefndin segir í sinni niðurstöðu að samkvæmt vottorðinu voru eigendur hússins viðstaddir vettvangsskoðun. Fram kemur á vottorðinu að kærandi sé meðal eigenda. Með hliðsjón af þessu verði að álíta að kæranda hafi verið kunnugt um ákvörðun um lokaúttekt hússins, frá þeim tíma sem hún fór fram í nóvember 2022 en eins og áður segir var kæran lögð fram í september 2024.

Því segir nefndin ljóst að kærufresturinn sé löngu liðinn.

Vottorð byggingarfulltrúans um lokaúttekt, á raðhúsi sem eigandinn fullyrðir að engar teikningar séu til af, stendur því óhaggað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust
Fréttir
Í gær

Strengslit Mílu við Laugarbakka

Strengslit Mílu við Laugarbakka
Fréttir
Í gær

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag
Fréttir
Í gær

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Í gær

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“