fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
433Sport

Stuðningsmenn Liverpool reiðir og hissa yfir ummælum dómarans í beinni í gær

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. september 2024 14:30

Mark Clattenburg. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ummæli Mark Clattenburg, fyrrum dómara yfir leik AC Milan og Liverpool í gær falla ekkert sérstaklega vel í kramið hjá stuðningsmönnum Liverpool.

Þannig vildi Clattenburg að dómari leiksins færi í það hlutverk að róa niður stuðningsmenn Milan sem voru æstir í 3-1 tapinu gegn Liverpool.

„Hann þarf að róa stuðningsmenn niður, þeir eru á móti honum. Hann þarf að gefa 1-2 ódýr brot til að fá þetta með sér,“ sagði Clattenburg á Prime.

Stuðningsmönnum Liverpool á veraldarvefnum er nokkuð brugðið að svona reyndur dómari hafi viljað sjá Espen Eskas dómara leiksins gefa ódýr brot til að róa menn.

„Þetta er galið, ég ætlaði ekki að trúa þessu,“ sagði einn netverji og stuðningsmaður Liverpool. Hundruð skilaboða í sama dúr má finna á X-inu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Amorim með sleggju – Segist vita hvað þarf að laga í sumar

Amorim með sleggju – Segist vita hvað þarf að laga í sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Horfðu á nýjan þátt af Íþróttavikunni þar sem Þorkell Máni fer á kostum

Horfðu á nýjan þátt af Íþróttavikunni þar sem Þorkell Máni fer á kostum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hafnar því alfarið að hafa tekið þátt í því að dreifa barnaklámi

Hafnar því alfarið að hafa tekið þátt í því að dreifa barnaklámi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Arnar horfði aftur og aftur á frammistöðu Arons Einars í síðasta glugga og segir – „Vænti mikils af honum að vera gott fordæmi“

Arnar horfði aftur og aftur á frammistöðu Arons Einars í síðasta glugga og segir – „Vænti mikils af honum að vera gott fordæmi“
433Sport
Í gær

Sturlaðir yfirburðir Ronaldo – Þetta voru tíu launahæstu íþróttamenn síðasta árs

Sturlaðir yfirburðir Ronaldo – Þetta voru tíu launahæstu íþróttamenn síðasta árs
433Sport
Í gær

Óvæntur framherji orðaður við Liverpool

Óvæntur framherji orðaður við Liverpool