fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Fiskikóngurinn hefur engar áhyggjur af kærum vegna brota á persónuvernd eða rifbeini – „Tækla ég það þegar og ef til þess kemur“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 6. júní 2024 20:00

Kristján Berg Ásgeirsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Berg Ásgeirsson, sem best er þekktur sem Fiskikóngurinn, skrifaði pistil í gær, miðvikudaginn 5. júní, þar sem sagðist afaf ósáttur við starfsmenn sem tryggja sér laun án vinnuframlags með því að leggja fram læknisvottorð sem lítill grundvöllur virðist fyrir.

Sagði Kristján atvinnurekendur vera rolur og láta launþega vaða yfir sig. „Við uppsögn í starfi þá fáum við oft veikindavottorð frá launþegum sem duga akkúrat út uppsagnarfrestinn, þó svo uppsögnin er 2-4 mánuðir.“ 

DV fjallaði fyrstur miðla um pistilinn í gær.  Sjá einnig: Fiskikóngurinn ósáttur vegna vafasamra veikindavottorða – „Við atvinnurekendur erum fokking ROLUR“

Kristján birti myndir með færslunni, þar á meðal læknisvottorð fyrrum starfsmanns síns, þar sem búið er að krota með svörtu tússi yfir persónuupplýsingar: nafn, kennitölu og svo framvegis. Það tókst hins vegar ekki betur til en svo að vel var hægt að greina kennitölu starfsmannsins.

Í samtali við Mannlíf segist Kristján ekki hafa áhyggjur af því að hann verði kærður fyrir brot á persónuverndarlögum. „Nei. Óttast það ekki. Ef svo verður þá tækla ég það þegar og ef til þess kemur.“

Veikur 12-14 daga á sjö ára tímabili

Umræddur starfsmaður hafði að sögn Kristjáns starfað hjá honum í sjö ár og segir Kristjáns við RÚV að  samstarfið hafi endað skyndilega en ekki vegna deilna. „Hann var búinn að vera veikur 12 – 14 daga á sjö árum sem er ekki mikið, bara fyrirmyndarstarfsmaður,“ segir Kristján, sem sagði starfsmanninum upp og segir það hafa tengst breytingum í rekstri. Daginn eftir að starfsmanninum barst uppsagnarbréfið sendi hann Kristjáni læknisvottorð upp á þrjá mánuði, það er vottorð sem gilti út uppsagnarfrestinn.

„Hvernig getur læknirinn séð það að einhver sé veikur og hann er ekki fótbrotinn eða neitt,“ segir Kristján við RÚV og segir líklegra að um andleg veikindi sé að ræða. „Kulnun, sem er tískuorðið í dag.“  Tímabilið framundan er að sögn Kristján eitt það söluhæsta á árinu og því hafi brotthvarf starfsmannins töluverð áhrif. „Mér brá að hann skyldi hætta svona snögglega. Að fullorðið fólk skuli tækla þetta svona.“

Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir í samtali við Vísi að svona tilfellum fari fjölgandi, að launþegar skili inn læknisvottorðum eftir uppsögn. „Að sjálfsögðu lítill minnihluti, en það færist í vöxt að reynt sé að spila á kerfið með þessum hætti. Við erum oft mjög hugsi yfir læknisvottorðunum – það eru jafnvel dæmi um að heimilislæknar votti að fólk sé óvinnufært á einum vinnustað en ekki öðrum. Virðist oft liggja lítil fagleg rannsókn á bak við vottorðin,” segir Ólafur.

„Við höfum séð of mörg dæmi um að fólk fái t.d. vottorð upp á að uppsögn í starfi hafi verið svo mikið áfall að það sé ekki fært um að vinna uppsagnarfrestinn.“

Í líflegri umræðu um málið á Reddit má sjá sams konar athugasemd þar sem einn segir:  „Það að missa vinnu þar sem þú hefur verið fyrirmyndarstarfsmaður í sjö ár er líka alvöru áfall, veikindavottorð getur alveg verið raunverulega nauðsynlegt í svona aðstæðum.“

Annar tekur í sama streng: „Gæjinn var þarna með starfsmann sem er aldrei veikur svo verður hann veikur og hann ætlar þá ekki að trúa því. Ég myndi skilja vælið í fiskiskóngnum ef hann væri að reka starfsmann sem er alltaf veikur. Sem kemur síðan með læknisvottorð yfir uppsagnarfrestinn. En ekki segja mér að þessi starfsmaðurinn sem hann notar sem dæmi eigi ekki fullann rétt á þessu.“

Einn mælir einfaldlega með að fólk nýti veikindadagana sína: „Nýtið veikindaréttinn ykkar, krakkar. Foreldrar okkar og forforeldrar börðust fyrir honum. Þú færð tvo veikindadaga í mánuði fullgreidda. Taktu andlegan heilsudag amk 1x í mánuði. Þú færð engin verðlaun eða ónýtta veikindadaga endurgreidda í lok árs (þegar þeir fyrnast og nýtt tímabil hefst).“

Ásakar Kristján um rifbeinsbrot

Í athugasemd við frétt DV í gær skrifar karlmaður og segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við Kristján: „Nú skal ég segja ykkur hvernig þetta var með mig, fiskikóngurinn sjálfur braut í mér 2 rifbein og þurfti ég að vera frá vinnu út af því ( að sjálfsögðu,, ég kom með vottor 1.03,, en ekki 4.03 eins og hann segir , á til afrit af þessu vottorði, já þetta með ótímabundið vottorð er eifaldlega út af því að það er ekki vitað hvenar þetta lagast,búinn að fara í nokkrar myndatökur út af þessu, enda ekki von að hann skylji svo flókið mál hann segir mér upp eftir að ég kem með vottorðið og neitar að borga launin, ekki í fyrsta skipti sem það hefur gerst.“

Í frétt Mannlífs er Kristján spurður út í þessa ásökun, sem hann þvertekur fyrir og segir tilraun til fjárkúgunar. „Hef ekki rifbeinsbrotið neinn, þannig að þetta er uppspuni til þess að reyna að kúga mig og mitt fyrirtæki. Ef þessi einstaklingur telur mig hafa brotið á sér, tala nú ekki um að beinbrjóta sig, þá höfum við lögreglu, lögfræðinga og gott dómskerfi til þess að tækla svoleiðis. Viðkomandi er velkomið að fara þá leið og þá gefst mér tækifæri á að verja mig fyrir slíkum ásökunum sem eru algert bull. Dómstólar dæma svo í málinu. Annars er þessu ekki svaravert. Hótanir og fjárkúganir bíta ekki á mig. Er sterkari en það.“

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar