fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
433Sport

Kristján hjólar í Guðmund Andra – „Kostaði 12 milljónir og ekki gert rassgat“

433
Föstudaginn 31. maí 2024 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Andri Tryggvason var í byrjunarliði Vals í gær þegar liðið vann 5-1 sigur á Stjörnunni. Hann fór af velli í stöðunni 0-0 vegna meiðsla.

Guðmundur er að hefja sitt fjórða tímabil í herbúðum Vals eftir að hafa komið heim úr atvinnumennsku.

„Guðmundur Andri byrjaði leikinn, á meðan hann naut við þá skoraði Valur ekkert. Þegar hann fór út liðu nokkrar sekúndur þangað til Valur skoraði,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson sérfræðingur Þungavigtarinnar í þætti dagsins.

Kristján segir að Valur hafi borgað fleiri milljónir fyrir Guðmund. „Verstu kaup í sögu íslenska boltans, kostaði 12 milljónir og ekki gert rassgat.“

Kristján hafði sett þessa skoðun sína fram á X-inu hans Elon Musk þegar leikurinn var í gangi. „Vinir hans eru núna byrjaðir að svara mér á Twitter, bið þá að grjóthalda kjafti í eitt skipti fyrir öll. Hann veit það manna best sjálfur.“

„Verið mikið meiddur en heilt yfir ömurleg kaup.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“
433Sport
Í gær

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“
433Sport
Í gær

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með