fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fókus

Áttu erfitt með að sofna? Prófaðu svefntækni bandaríska hersins

Fókus
Þriðjudaginn 26. desember 2023 13:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svefntækni sem þróuð var af bandaríska hernum getur hjálpað þér að sofna á rúmum tveimur mínútum. Margir eiga erfitt með að sofna á kvöldin og sýna tölur frá Embætti landlæknis að meðalsvefn landsmanna hefur styst verulega á síðustu sextíu árum. Sefur þriðjungur Íslendinga sex klukkustundir eða minna að jafnaði.

Svefn er mikilvægur fyrir margra hluta sakir, svefnleysi getur aukið líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum, sem og öðrum heilsufarsvandamálum. Í djúpsvefni á sér stað gríðarlega virkt ferli þar sem heilinn hreinsar út notuð boðefni dagsins og undirbýr nýjan dag, þar fer fram bæði endurnýjun og viðgerð á frumum. Í draumsvefni er virkjað ferli þar sem unnið er úr upplýsingum dagsins og lærdómur festist í minni.

Tæknin til að ná að sofna á aðeins tveimur mínútum er eftirfarandi, samkvæmt skýrslu hersins var árangurinn 96% eftir sex vikna æfingar.

Slakaðu á öllum vöðvum í andlitinu. Tungan, kjálkinn og vöðvana í kringum augun.

Færðu axlirnar eins langt niður og þú getur. Slakaðu svo á öðrum handleggnum, svo hinum.

Andaðu út. Slakaðu í brjóstkassanum og færðu slökunina neðar. Að lokum hefur þú slakað á öllum líkamanum.

Þegar þú hefur slakað í tíu sekúndur þá áttu að hætta að hugsa. Ekki hugsa um neitt.

Ef þú getur ekki hætt að hugsa þá getur þú endurtekið orðin „ekki hugsa“ í 10 sekúndur.

Mynd/National Park Service

Ef það er engin leið fyrir þig að hætta að hugsa á getur þú ímyndað þér að þú liggir í kanó á rólegu stöðuvatni með ekkert nema heiðskýran himinn fyrir ofan þig.

Stúlka í hengirúmi, eftir Winslow Homer.

Þú mátt einnig ímynda þér að þú liggir í hengirúmi úr flauel í dimmu herbergi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýjar myndir af Hilary Duff vekja athygli – Sögð komin með sömu kinnbein og Madonna

Nýjar myndir af Hilary Duff vekja athygli – Sögð komin með sömu kinnbein og Madonna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Allt sem þú þarft að vita um Ungfrú Ísland TEEN

Allt sem þú þarft að vita um Ungfrú Ísland TEEN
Fókus
Fyrir 5 dögum

Útskýrir af hverju hann ætlar að gefa nánast allan sinn auð

Útskýrir af hverju hann ætlar að gefa nánast allan sinn auð
Fókus
Fyrir 5 dögum

Simon Cowell afhjúpar villta kynlífsbeiðni – Parið var tilbúið að borga 19 milljónir

Simon Cowell afhjúpar villta kynlífsbeiðni – Parið var tilbúið að borga 19 milljónir