fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Fréttir

Neytendasamtökin og VR telja mögulegt að Creditinfo hafi brotið gegn lögum og starfsleyfi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 30. nóvember 2023 10:02

Stjórn Neytendasamtakanna. Mynd: ns.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilkynningu á heimasíðu Neytendasamtakanna segir að Meðferð Creditinfo á viðkvæmum persónuupplýsingum um fjárhag einstaklinga gæti farið  á svig við lög og starfsleyfi fjárhagsupplýsingafyrirtækisins, að mati samtakanna og VR.

Kemur þessi tilkynning í kjölfar breytinga Creditinfo á því hversu gamlar upplýsingar um fyrri vanskilasögu eru nýttar við mat á lánshæfi einstaklinga. Sú breyting hefur sett fjárhag og lánshæfismat fjölda fólks í nokkurt uppnám og hafa margir leitað til Neytendasamtakanna vegna þessa.

Sjá einnig: Uppnám vegna ákvörðunar Creditinfo um að nýta upplýsingar um eldri vanskilasögu fólks sem er ekki lengur í vanskilum: „Það er kominn tími á nýja búsáhaldabyltingu“

Í tilkynningunni segir að Neytendasamtökin hafi því sent Persónuvernd erindi vegna málsins og óskað eftir flýtimeðferð. Breytingarnar hafa haft stórkostlegar, víðtækar og skyndilegar afleiðingar fyrir 40% Íslendinga samkvæmt fréttaflutningi. Fjöldi fólks hafi misst lánsheimildir og lánstraust hjá lánveitendum, ekki vegna breytinga á eigin högum, heldur vegna breytinga hjá Creditinfo. Fyrirtækið hafi ekki gætt meðalhófs í aðgerðum sínum, ekki veitt fólki upplýsingar um þær fyrirfram, né gefið kost á andmælum.

Þess ber að geta að samkvæmt tölum Creditinfo sem birtar voru í fréttum Vísis segir að lánshæfismat 25 prósent landsmanna hafi hækkað vegna breytingannna en lækkað hjá 15 prósent landsmanna.

Í tilkynningunni segir enn fremur Neytendasamtökin og VR kalli eftir því að stjórnvöld hafi eftirlit með og láti gera úttekt á virkni lánshæfismats Creditinfo. Neytendasamtökin hafi lengi bent á að ekkert eftirlit ´se með því hvernig  lánshæfismat er reiknað út og hvaða breytur stjórni því nákvæmlega hvers vegna  tiltekinn aðili falli um flokk eða færist upp um flokk.

Í tilkynningunni segir einnig að við þessar nýlegu breytingar Creditinfo hafi að sögn 40% þjóðarinnar færst um lánshæfisflokk. Það eitt og sér gefi tilefni til að ætla að pottur sé brotinn í gerð lánshæfismats hjá Creditinfo. Úr því fáist ekki skorið nema með úttekt óháðs aðila og virku eftirliti. Enn fremur segir að svo virðist sem fólk hafi ekki verið látið vita um að það yrði fært á milli flokka þegar Creditinfo ákvað að breyta um verklag. Fyrir marga neytendur geti það haft alvarlegar afleiðingar að færast niður um lánshæfisflokk. Bendi samtökin á að „framúrskarandi fyrirtæki hefði sýnt þá kurteisi að láta fólk vita með góðum fyrirvara og gefið fólki kost á að andmæla.“

Hvetja fólk til að leita upplýsinga hjá Creditinfo

Neytendasamtökin og VR vekja í tilkynningunni athygli á að nýlega hafi Persónuvernd sektað Creditinfo, sem var gert hafi verið að greiða tæpar 38 milljónir króna fyrir að hafa skráð fólk ranglega á vanskilaskrá. Neytendasamtökin og VR séu að kanna bótarétt þess fólks og hvetji fólk sem var skráð á vanskilaskrá vegna smálána að setja sig í samband við Neytendasamtökin með því að senda tölvupóst á ns@ns.is.

Í tilkynningunni segir enn fremur að samkvæmt 2. mgr. 12. greinar reglugerðar 606/2023 um vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust beri fyrirtækinu að veita einstaklingi upplýsingar um vægi einstakra breytna við útreikning á líkindum í skýrslu um lánshæfi hans og þau rök sem liggi þar að baki. Því bendi samtökin fólki á að biðja um þessi gögn. Hægt sé að senda álíka bréf og eftirfarnadi creditinfo@creditinfo.is:

„Góðan dag
Ég óska eftir öllum upplýsingum sem Creditinfo notar til að reikna út lánshæfismat mitt, þar með talið upplýsingar um vægi einstakra breytna við útreikning á líkindum í skýrslu um lánshæfi mitt og þau rök sem liggja þar að baki.
Virðingarfyllst,
(Nafn, kennitala)“

Í tilkynningunni segir að Neytendasamtökin og VR hvetji neytendur að afla allra gagna sem þau geta og vista, þ.m.t. um eldri skráningu á vanskilaskrá (ef við á), afrit af hinu nýja lánshæfismati (og eldra), öllum samskiptum við Creditinfo o.s.frv. Telji neytendur á sér brotið geti þeir leitað til Neytendasamtakanna með því að senda umrædd gögn til skoðunar.

Að lokum segir að sé þessi vinnsla Creditinfo ekki óheimil muni Neytendasamtökin beita sér fyrir reglugerðar- og lagabreytingum eftir því sem við á. Þá minni samtökin á að vinnsla lánshæfismats þurfo að vera málefnaleg og gefa rétta mynd af lánshæfi. Lækkun lánshæfis sem byggi ekki á réttlátum, málefnalegum og áreiðanlegum gögnum gefi ekki rétta mynd af stöðu og lánshæfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Egill spyr hvort Íslendingar þurfi ekki að læra lexíu af Eurovision

Egill spyr hvort Íslendingar þurfi ekki að læra lexíu af Eurovision
Fréttir
Í gær

Komnir heim til Bretlands eftir hörmulegt slys á Íslandi

Komnir heim til Bretlands eftir hörmulegt slys á Íslandi