fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
433Sport

Hryðjuverkin í Brussel náðust á myndband – Meintur árásamaður birtist og sagðist gera þetta fyrir trúna

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. október 2023 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meintur hryðjuverkamaður í Brussel birtist  á myndbandi á samfélagsmiðlum í gærkvöldi og sagðist hafa myrt þrjá sænska ríkisborgara þar í gær. Tveir voru skotnir til bana í borginni í gærkvöldi og greindu fjölmiðlar í Belgíu frá því nú í morgunsárið að meintur árásarmaður hafi verið skotinn til bana í Schaerbeek-hverfinu undir morgun. Yfirvöld eiga þó eftir að staðfesta að um sama mann sé að ræða.

„Við lifum fyrir trú okkar, við deyjum fyrir trú okkar. Ég er að hefna mín fyrir múslima og nú hef ég drepið þrjá Svía. Ég þakka Guði, ég mun hitta hann og spámanninn glaður í bragði,“ sagði maðurinn á myndbandinu en eins og fyrr segir er talið að tveir hafi látist í árásinni.

Maðurinn er samkvæmt erlendum miðlum með tengsl við ISIS-samtökin. Báðir þeir sem létu lífið voru klæddir í sænska landsliðsbúninginn og voru á leið á völlinn þar sem leikur Belga og Svía fór fram.

Í myndbandi sem sjá má neðst í fréttinni sést hann skjóta ítrekað á annan aðilann sem liggur í jörðinni.

Af vettvangi

Tveir sænskir ríkisborgarar voru myrtir í Brussel, höfuðborg Belgíu, í gær. Voru þeir mættir þangað til að fylgja eftir landsliði sínu.

Yfirvöld í Belgíu rannsaka málið sem hryðjuverk og vegna þess var leik hætt þegar Belgía og Svíþjóð áttust við, en leikmenn Svíþjóðar sögðu við UEFA að þeir kærðu sig ekki um að spila seinni hálfleikinn og belgísku leikmennirnir tóku undir.

@kristalski #fyp #viral #bruxelles #shooter #war #news #new #terror #isi ♬ original sound – AGE.Man

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Glódís er leikfær
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Virkja tæplega 9 milljarða klásúlu í samningi stráksins eftirsótta

Virkja tæplega 9 milljarða klásúlu í samningi stráksins eftirsótta
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Arsenal opinberar nýja búninga og viðbrögðin standa ekki á sér – Myndir

Arsenal opinberar nýja búninga og viðbrögðin standa ekki á sér – Myndir
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Segja þá hafa tekið óvænta ákvörðun varðandi Walker

Segja þá hafa tekið óvænta ákvörðun varðandi Walker
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Mikil gleðitíðindi fyrir Arsenal

Mikil gleðitíðindi fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin þegar tveimur umferðum er ólokið – Skelfileg niðurstaða Manchester United

Ofurtölvan stokkar spilin þegar tveimur umferðum er ólokið – Skelfileg niðurstaða Manchester United
433Sport
Í gær

Fundaði einnig með Liverpool

Fundaði einnig með Liverpool
433Sport
Í gær

Einn besti leikmaður Tottenham ekki getað æft og er tæpur fyrir úrslitaleikinn

Einn besti leikmaður Tottenham ekki getað æft og er tæpur fyrir úrslitaleikinn
433Sport
Í gær

Byrjað að selja miða á landsleikina í næsta mánuði

Byrjað að selja miða á landsleikina í næsta mánuði