fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hareide kynnir hóp sinn á miðvikudag: Ólíklegt að Gylfi verði – Aron Einar og Jóhann Berg meiddir

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 2. október 2023 18:00

Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd: Lyngby

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Age Hareide kynnir sinn nýjasta landsliðshóp á miðvikudag á fjarfundi. A landslið karla mætir Lúxemborg á Laugardalsvelli föstudaginn 13. október klukkan 18:45 í undankeppni EM 2024. Þremur dögum síðar er það leikur við Liechtenstein.

Hareide vann sinn fyrsta leik sem þjálfari Íslands í september þegar liðið mætti Bosníu á heimavelli.

Sverrir Ingi Ingason gæti komið inn í hópinn frá síðasta verkefni en þá var hann frá vegna meiðsla, hann hefur náð heilsu og spilar nú með Midtjylland.

Vonir stóðu til um að Gylfi Þór Sigurðsson gæti snúið aftur en hann missir af leik Lyngby í dag vegna meiðsla og endurkoma hans í landsliðið ólíklegt á þessum tímapunkti.

Jóhann Berg Guðmundsson er frá vegna meiðsla en ætti að vera klár í slaginn í nóvember. Þá er fyrirliði liðsins, Aron Einar Gunnarsson áfram frá vegna meiðsla.

Albert Guðmundsson er svo ekki í boði fyrir Hareide en reglur KSÍ banna val á leikmanni sem er undir rannsókn vegna kynferðisbrots.

Íslenska liðið þarf að vinna báða þessa heimaleiki til að eiga veik von á öðru sæti riðilsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“