Gunnlaugur Helgason fjölmiðlamaður, Gulli Helga, vann sína síðustu vakt þann 30. júní í morgunþættinum Bítinu á Bylgjunni eftir tíu ára starf í þættinum. Gulli vinnur nú í sjálfum sér og jafnframt í nýjum þætti af Gulli byggir.
Í viðtali í gær í Ísland í dag segir Gulli árið 2022 hafa verið einstaklega erfitt ár og hann hafi að lokum gengið á vegg í janúar og áttað sig á því að hann væri kominn í kulnun þegar hann stóð sig að því að finnast allt leiðinlegt, allt erfitt og allir í kringum hann vitlausir.
„Sko, 2022, strembið ár. Þá var ég að gera átta þátta seríu, dóttir mín var að gera upp íbúð, móðir mín veikist og ég þarf að hjálpa henni að finna hjúkrunarheimili. Ég eiginlega bara hljóp á vegg í janúar. Og þá komumst við að því að ég þyrfti einhvers staðar að skrúfa fyrir og Bítið varð fyrir valinu. “
Segist hann einnig hafa verið orðinn þreyttur á vinnutímanum, en Bítið er í loftinu kl. 6.50 – 10.00 virka daga. „Maður lá kannski andvaka, og náði ekki fullum svefni. Alltaf að vakna klukkan fimm og alltaf að vera hress og kátur í morgunútvarpinu. Þetta var pínulítið orðið eins og Groundhog Day, búin að taka sömu viðtölin oft. Þetta var orðið svolítið eins og hringiða.“
Gulli segir eigin þátt, Gulla byggi, standa upp úr þeim fjölmiðlaverkefnum sem hann hefur tekið þátt í. „Svo hoppaði maður á milli útvarpsstöðva eins og ég veit ekki hvað, en það var mjög skemmtilegur tími.“
Viðtalið við Gulla má horfa á í heild sinni hér.