fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Fréttir

Nöfn þeirra sem létust í flugslysinu

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 11. júlí 2023 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau er létust í flugslysi á Austurlandi síðastliðinn sunnudag voru við reglulegar hreindýratalningar Náttúrustofu Austurlands þegar slysið varð. Þrjú voru um borð og létust öll. 

Fríða Jóhannesdóttir, fædd 1982, spendýrafræðingur

Kristján Orri Magnússon, fæddur 1982, flugmaður

Skarphéðinn G. Þórisson, fæddur 1954, líffræðingur

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi.

Eins og komið hefur fram fer minningarstund um hin látnu fram í Egilsstaðakirkju kl. 18 í dag og verða prestar kirkjunnar ásamt fulltrúum úr viðbragðshópi RKÍ á Austurlandi vegna sálræns stuðnings við minningarathöfnina.

Sjá einnig: Minningarstund í Egilsstaðakirkju vegna flugslyssins

Slysið varð við Sauðahlíðar, suður af Skriðdal og vestur af Öxi og er rannsókn slyssins í höndum rannsóknarnefndar samgönguslysa og lögreglunnar á Austurlandi. 

Samfélagið fyrir austan er í áfalli vegna þessa hörmulega slyss og bendir Samráðshópur almannavarna um áfallahjálp öllum sem eiga um sárt að binda vegna þessa að hægt er að leita til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, kirkjunnar, hjálparsíma Rauða krossins og Félagsþjónustunnar í Múlaþingi og Fjarðarbyggð.

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA): Hægt er að senda póst á afallahjalp@hsa.is eða hringja á heilsugæslu HSA og fá samtal við hjúkrunarfræðing í síma 470-3000 á dagvinnutíma. Sjá upplýsingar um opnunartíma hér og á Facebooksíðunni Heilbrigðisstofnun Austurlands.

Kirkjan – Prestar eru til viðtals í síma fyrir hjálp eða sálgæslu eins og óskað er eftir:
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Fáskrúðsfirði 8971170, jona.kristin.thorvaldsdottir@kirkjan.is
Sigríður Rún Tryggvadóttir, 6984958 sigridur.run.tryggvadottir@kirkjan.is
Arnaldur Arnold Bárðarson, Breiðdalsvík 7668344, arnaldur.bardarson@kirkjan.is
Ingibjörg Jóhannsdóttir, djákni, 7601033, ingibjorg.johannsdottir@kirkjan.is

Félagsþjónustan í Múlaþingi, sími 4700700
Félagsþjónustan í Fjarðarbyggð, sími 4709015 fyrir ráðgjöf og upplýsingar

Hjálparsími Rauða krossins 1717 er alltaf opinn og þar er einnig hægt að ná sambandi við ráðgjafa í gegnum netspjall.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Húseigandi í Grindavík segist vera að bugast vegna seinagangs Þórkötlu

Húseigandi í Grindavík segist vera að bugast vegna seinagangs Þórkötlu
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir bandarískum manni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir bandarískum manni
Fréttir
Í gær

Komnir heim til Bretlands eftir hörmulegt slys á Íslandi

Komnir heim til Bretlands eftir hörmulegt slys á Íslandi
Fréttir
Í gær

Ekki í bílbelti og í símanum rétt áður en hann dó í bílslysi

Ekki í bílbelti og í símanum rétt áður en hann dó í bílslysi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Talið að Rússar geri út glæpamenn til að vinna skemmdarverk í Evrópu og Bandaríkjunum

Talið að Rússar geri út glæpamenn til að vinna skemmdarverk í Evrópu og Bandaríkjunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ragnar Freyr hreinsaður af ásökunum um ólögmætar uppflettingar í sjúkraskrám

Ragnar Freyr hreinsaður af ásökunum um ólögmætar uppflettingar í sjúkraskrám
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árás Biden á Trump missti marks þegar hann ruglaðist á löndum

Árás Biden á Trump missti marks þegar hann ruglaðist á löndum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tíkin Tita var drepin á Laugarási – „Tímaspursmál hvenær þessir hundar ráðast á eitthvað annað“

Tíkin Tita var drepin á Laugarási – „Tímaspursmál hvenær þessir hundar ráðast á eitthvað annað“