fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Pressan

Lögreglan óskar eftir aðstoð – Hver er maðurinn?

Pressan
Mánudaginn 27. mars 2023 20:30

Hver er maðurinn?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í hálft annað ár hefur sænska lögreglan glímt við morðmál. Það var í október 2021 sem lík af karlmanni fannst í skógi nærri Borås. Talið er að þá hafi verið tvær til fjórar vikur síðan hann var myrtur.

Lögreglunni hefur ekki orðið mikið ágengt við rannsókn málsins. Hún hefur ekki hugmynd um hver hinn látni er.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni. Þar biðlar hún til almennings um aðstoð og birtir teikningu af manninum í þeirri von að einhver geti borið kennsl á hann. Teikningin er byggð á greiningu á erfðamengi mannsins.

Talið er að hann hafi verið á aldrinum 40 til 65 ára og 166 til 175 cm á hæð. Hann notaði skó númer 36-38. Var ljós á hörund og brúneygður. Hann er sagður hafa verið skolhærður eða brúnhærður.

Hver er hann?
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað