fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
433Sport

Kalla eftir því að hann stígi upp gegn Íslandi í kvöld – „Leikurinn gegn Íslandi er fullkomið tækifæri“

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 23. mars 2023 18:00

Rade Krunic verður að öllum líkindum í byrjunarliði Bosníu gegn Íslandi / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlar í Bosníu & Herzegovinu kalla eftir því, nú þegar aðeins nokkrar klukkustundir eru þar til flautað verði til leiks í landsleik Bosníu og Íslands í undankeppni EM 2024, að leikmaður bosníska landsliðsins, Rade Krunic stígi upp og sýni sitt rétta andlit með landsliðinu.

Heimamenn munu þurfa að takast á við Íslendinga án nokkurra af sínum reynslumestu leikmönnum. Þekkt nöfn á borð við Miralem Pjanic, Sead Kolasinac og Muhamed Besic eru allir fjarverandi en í fjölmiðlum ytra er kallað eftir því að miðjumaðurinn Rade Krunic stígi upp við þessar aðstæður.

„Krunic hefur verið einn af bestu leikmönnum AC Milan undir stjórn Pioli,“ segir í umfjöllun bosníska fjölmiðlsins Sportske.

Krunic á að baki 27 A-landsleiki fyrir Bosníu & Herzegovinu en hefur enn, að sögn Sportske, ekki sýnt sitt rétta andlit með landsliðinu.

„Stuðningsmenn landsliðsins eru enn að bíða eftir því að Krunic spili landsleik sem hægt er að minnast hans fyrir. Leikurinn gegn Íslandi er fullkomið tækifæri fyrir Krunic til að sýna hvað hann getur og hvers vegna hann er svona vel metinn hjá AC Milan.“

Krunic hefur spilað 15 leiki með AC milan í ítölsku úrvalsdeildinni á yfirstandandi tímabili og sjö leiki í Meistaradeild Evrópu.

Leikur Bosníu & Herzegovinu og Íslands hefst klukkan 19:45 og fer fram á Stadion Bilino polje í Zenica. Bein útsending er frá leiknum á streymisveitu Viaplay.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum
Góð tíðindi af Orra
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fer frítt frá Liverpool

Fer frítt frá Liverpool
433Sport
Í gær

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu
433Sport
Í gær

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift