Einar Carl Axelsson stofnandi og eigandi Primal Iceland segist sjá það í störfum sínum að á Íslandi sé streitu- og kvíðafaraldur. Einar Carl, sem er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar, hefur unnið við að aðstoða fólk eftir að hafa sjálfur þurft að skipta alveg um takt í kjölfar alvarlegs slyss. Ný rannsókn á vegum nemenda í Háskóla Íslands bendir til mikils árangurs hjá Primal Iceland í að ná niður kvíða, streitu og depurð.
„Við vorum búin að upplifa það að fólk sagðist finna gríðarlegan mun á sér eftir námskeiðin, en höfðum ekki nein gögn í höndunum. En þessi rannsókn sem er BS verkefni á vegum sálfræðideildar Háskóla Íslands sýnir okkur að það sem við erum að gera virðist vera að skila gríðarlegum árangri. Í stuttu máli var verið að skoða hvort það væru klínísk áhrif fyrir og eftir hjá þáttakendum í námskeiðinu okkar „Sigrum Streituna“. Fólk sem kemur til okkar er mjög oft að glíma við kvíða, depurð og streitu og þeir sem unnu rannsóknina lögðu ítarlega spurningalista fyrir þáttakendur bæði fyrir og eftir námskeiðið. Það kemur í ljós að það er ekki bara munur, heldur stórkostlegur munur og þeir sem hafa séð niðurstöðurnar eru í raun nánast agndofa yfir tölunum. Tölurnar eru nánast of góðar til að trúa þeim. Til að taka dæmi upplifðu 11 af 64 þáttakendum einkenni alvarlegs þunglyndis fyrir námskeiðið. Eftir námskeiðið var talan komin niður í núll. Miðlungs-einkenni fóru úr 20 niður í 2 og svo framvegis. Í hópnum var bæði fólk á vinnumarkaði og fólk sem var dottið af vinnumarkaði. Við vissum að við værum að hafa góð áhrif á kvíða og streitu, en það sem kom okkur meira á óvart var hve mikil áhrif aðferðirnar okkar virðast hafa á þunglyndi. Auðvitað viljum við fá frekari rannsóknir til að staðfesta þetta, en það er ótrúlega gaman að sjá hve miklu er hægt að breyta með því að nota hreyfingu, öndun og aðra hluti sem snúa að líkamanum.”
Einar Carl er fyrrverandi landsliðsmaður í taekwondo sem skipti um takt í lífinu eftir að hafa hryggbrotnað á fimm stöðum í skíðaslysi í frönsku ölpunum. Hann þurfti að leita allra leiða til að geta hreyft sig eðlilega aftur og eftir margra ára ferðalag stofnaði hann líkamsræktarstöðina Primal Iceland.
Í gegnum störf sín þar sér hann alla flóruna af fólki og fær ákveðinn þverskurð af ástandi þjóðarinnar, þar sem stór hópur þeirra sem leitar til hans er fólk sem ekki hefur fundið lausnir annars staðar. Hann segir kulnunar og streitufaraldur í samfélaginu og að aldur þeirra sem upplifa slíkt virðist ná mun neðar en oft er talað um.
„Við myndum vilja sjá það inni í grunnskólunum að börnum yrði kennt á taugakerfið sitt, svo hægt væri að grípa fyrr inn í, áður en þörf væri orðin á lyfjum eða öðrum lausnum sem koma eftir að einkenni hafa versnað. Við erum komin með mjög skrýtið norm í okkar samfélagi. Það er nánast litið á það sem eðlilegan hlut að fólki líði illa. Auðvitað er verið að vinna frábæra hluti í skólum landsins, en það hlýtur að koma að því að við sjáum mikilvægi þess að kenna börnum meira um heilsu, taugakerfið og eigin tilfinningar,“ segir Einar, sem segir að hann hefur séð fólk undir tvítugu sem er komið í kulnunarástand.
„Mjög stór hluti Íslendinga sefur bæði of lítið og of illa. Við vitum núna að það hefur slæm áhrif á nánast allt í líkamsstarfseminni. Þegar þú sefur ekki vel aukast til dæmis til muna einkenni ADHD. Matthew Walker, sem er einn helsti sérfræðingur heims í svefni hefur bent á þetta. Auðvitað geta lyf við ADHD virkað vel á einbeitingu, en við verðum líka að horfa á lífsstílinn og skoða hvaðan ræturnar koma. Ég er alls ekki að segja að lyf eigi ekki rétt á sér, en við hljótum að geta verið sammála um að það sé vænlegri lausn að ráðast á ræturnar áður en einkenni eru orðin slæm.“
Einar Carl segist vilja sjá fólk í heilsu- og heilbrigðisgeiranum koma saman og samræma aðferðir til að aðstoða fólk og þannig væri hægt að finna heildrænar lausnir.
„Á endanum viltu bara hjálpa fólki. Hvaða aðferðir sem við erum að nota, þá verða þær bara að virka. Það er fátt mikilvægara en að ná fólki úr viðjum mikils kvíða, streitu og þunglyndis. Það er engin betri tilfinning en að ná að hjálpa fólki sem er búið að vera lengi í svona ástandi og að sjá það brosa aftur og ná vopnum sínum er ótrúlegt. Það er ástæðan fyrir því að ég vinn við þetta,“ segir hann.
Þáttinn með Einari og alla aðra þætti Sölva má nálgast inni á www:solvitryggva.is