

Erik ten Hag stjóri Manchester United gaf leikmönnum sínum smá frí eftir sigurinn á West Ham á sunnudag.
United liðið mætir aftur til æfinga í dag en liðið mætir svo Real Sociedad í Evrópudeildinni á morgun.
Liðið heldur Spánar og þarf tveggja marka sigur til þess að vinna riðilinn. Til að slaka aðeins á fór Ten Hag í hjólatúr með eiginkonu sinni.
Ten Hag er fluttur í úthverfi Manchester en hann og konan hans hafa fest kaup á rafmagnshjólum.
Ten Hag hjólaði um Altrincham hverfið ásamt konu sinni og kom við á kaffihúsi. Hjónin fluttu til Manchester í sumar eftir langa dvöl í Hollandi.
