fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Fréttir

Segir fulla ástæðu til að fylgjast vel með jarðhræringum við Herðubreið

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 25. október 2022 09:00

Herðubreið. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á laugardagskvöld hófst jarðskjálftahrina norðan af Herðubreið. Í gær höfðu á annað þúsund skjálftar mælst. Sá stærsti var í upphafi hrinunnar og mældist rúmlega 4 að stærð. Náttúruvársérfræðingur segir fulla ástæðu til að fylgjast vel með gangi mála á svæðinu.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Einari Bessa Gestssyni, náttúruvársérfræðingi hjá Veðurstofu Íslands, að engi merki, önnur en skjálftavirkni, hafi sést en vel sé fylgst með þegar jarðskjálftahrinur af þessu tagi standi yfir. Ef hún verði viðvarandi verði farið í nánari greiningu á því sem er að gerast og gervihnattagögn og gögn um aflögun yfirborðs skoðuð.

Hann sagði að flestar jarðskjálftahrinur á þessu svæði á síðustu árum hafi tengst spennulosun í misgengjum en ekki kvikuhreyfingum. Hann benti á að við Öskju hafi land risið og skjálftavirkni átt sér stað að undanförnu, þetta sé rakið til kvikuinnskots. Af þeim sökum sé góð ástæða að fylgjast með öllu sem gerist nærri Öskju.

Hann sagði að ekki sé hægt að útiloka að einhver tengsl séu á milli Öskju og Herðubreiðar.

Nánar er hægt að lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fyrrverandi eiginkona læknisins í sjokki yfir dómi Landsréttar

Fyrrverandi eiginkona læknisins í sjokki yfir dómi Landsréttar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“
Fréttir
Í gær

Atvik sem fór framhjá flestum í gær – Trompaðist gjörsamlega þegar hann var tekinn af velli

Atvik sem fór framhjá flestum í gær – Trompaðist gjörsamlega þegar hann var tekinn af velli
Fréttir
Í gær

169 einstaklingar sem finnast ekki

169 einstaklingar sem finnast ekki
Fréttir
Í gær

Dúxaði í Verzló en er nú á svörtum lista Vesturlanda – Fannst íslenskir unglingar drekka of mikið

Dúxaði í Verzló en er nú á svörtum lista Vesturlanda – Fannst íslenskir unglingar drekka of mikið
Fréttir
Í gær

Drengurinn er fundinn heill á húfi

Drengurinn er fundinn heill á húfi