fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
433Sport

Segja Barcelona hafa boðið Chelsea að fá þrjá

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 4. ágúst 2022 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt frétt Evening Standard hefur Barcelona boðið Chelsea að fá þrjá leikmenn úr sínum röðum.

Barcelona er í fjárhagsvandræðum, auk þess að hafa keypt töluvert magn af leikmönnum í sumar. Því þarf að selja leikmenn til að fá inn pening.

Börsungar eru til í að selja Frenkie de Jong til Chelsea. Miðjumaðurinn hefur verið orðaður við Manchester United í allt sumar. Vandinn er að Barcelona skuldar Hollendingnum töluverðar fjárhæðir í laun, sem hann vill fá áður en hann yfirgefur félagið.

Þá er Barcelona einnig til í að selja Chelsea þá Pierre-Emerick Aubameyang og Memphis Depay.

Báðir hafa þeir reynslu úr ensku úrvalsdeildinni. Aubameyang fór frá Arsenal til Barcelona í janúar. Depay lék áður með Man Utd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Helstu lykilmenn Real Madrid teknir af lífi í spænskum miðlum – Telja liðið eiga langt í land

Helstu lykilmenn Real Madrid teknir af lífi í spænskum miðlum – Telja liðið eiga langt í land
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Heilbrigðisyfirvöld kanna ástandið á nýjum heimavelli Barcelona – Staðfest berklasmit

Heilbrigðisyfirvöld kanna ástandið á nýjum heimavelli Barcelona – Staðfest berklasmit
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Wenger uppljóstrar um loforð sem Liverpool gaf Wirtz – Munu að öllum líkindum svíkja það núna

Wenger uppljóstrar um loforð sem Liverpool gaf Wirtz – Munu að öllum líkindum svíkja það núna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ronaldo opinberar hvernig hann bað Georginu – Er ekki rómantískur og gerðist um miðja nótt

Ronaldo opinberar hvernig hann bað Georginu – Er ekki rómantískur og gerðist um miðja nótt