fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
433Sport

Sjáðu hvað þjóðin hafði að segja eftir leik – „Ekki skorað úr opnum leik í þremur úrslitaleikjum“

Helgi Fannar Sigurðsson
Laugardaginn 28. maí 2022 21:48

Frá leiknum. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Real Madrid er Evrópumeistari eftir sigur á Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í París í kvöld. Hér neðst í fréttinni má sjá hvað knattspyrnuáhugamenn á Íslandi höfðu að segja um leikinn.

Liðin þreifuðu fyrir sér fyrsta stundarfjórðunginn en Liverpool var meira með boltann. Eftir það fór Liverpool upp um gír og fékk Mohamed Salah tvö fín færi eftir rúman fimmtán mínútna leik. Skömmu síðar fékk Sadio Mane gott færi en tókst ekki að skora. Í bæði skiptin varði Thibaut Courtois vel í marki Real.

Liverpool var áfram betri aðilinn út fyrri hálfleikinn en undir lok hans kom Karim Benzema knettinum í netið. Mark hans var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu en dómurinn var nokkuð umdeildur. Boltinn fór af Fabinho, leikmanni Liverpool, en Frakkinn var samt dæmdur rangstæður þar sem dómarar mátu það svo að Fabinho hafi ekki viljandi sent boltann.

Staðan í hálfleik var markalaus.

Seinni hálfleikur fór rólega af stað en á 59. mínútu geystust leikmenn Real Madrid fram völlinn. Endaði það með fyrirgjöf Federico Valverde á Vinicius Junior sem skoraði.

Í kjölfarið tók við kafli þar sem Liverpool sótti án afláts og skapaði sér töluvert af góðum færum. Courtois var hins vegar stórkostlegur í kvöld og átti hverja frábæra vörsluna á fætur annari.

Real fékk einnig tækifæri hinum megin á vellinum upp úr skyndisóknum og var Vinicius yfirleitt í aðalhlutverki þar. Brassinn var frábær í leiknum.

Real Madrid tókst að hægja vel á leiknum síðustu mínúturnar og leikurinn fjaraði aðeins út.

Lokatölur 1-0 fyrir Real Madrid sem vinnur sinn fjórtánda Evrópumeistaratitil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gómaður sex sinnum á tveimur mánuðum fyrir of hraðan akstur – Fékk væna sekt og missir prófið

Gómaður sex sinnum á tveimur mánuðum fyrir of hraðan akstur – Fékk væna sekt og missir prófið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Brynjar Björn opnar sig um það þegar Grindvíkingar ráku hann úr starfi í fyrra – „Það hefur þurft að skipta um blek í prentaranum“

Brynjar Björn opnar sig um það þegar Grindvíkingar ráku hann úr starfi í fyrra – „Það hefur þurft að skipta um blek í prentaranum“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Barcelona til í að losa átta leikmenn til að fjármagna kaup á þremur

Barcelona til í að losa átta leikmenn til að fjármagna kaup á þremur
433Sport
Í gær

Vilja fá hann fyrir HM vegna meiðslavandræða

Vilja fá hann fyrir HM vegna meiðslavandræða
433Sport
Í gær

Glódís er leikfær

Glódís er leikfær