Borg Brugghús sendir nú frá sér sérstakan áramótabjór í samstarfi við brugghúsið Álfur. Þetta er sjötta árið í röð sem Borg gefur út bjór í tengslum við áramót og hafa þeir allir verið svokölluð sambrugg, það er bruggaðir í samstarfi með öðru brugghúsi. Fyrsta sambruggið fór fram árið 2016 en þá tók Borg höndum saman við Gæðing úr Skagafirði.
Áramótabjórinn í ár nefnist NASL og er í bjórstílnum Gose, tegund saltra súrbjóra, ættaðir frá Goslar í Þýskalandi. NASL er þó langt frá hinum hefðbundnu Gose bjórum þar sem hann er meðal annars bruggaður með perum, ferskjum, blóðbergi og íslenskum kartöflum;
„Þetta var skemmtilegt ferli þar sem við vorum í raun aldrei að stefna á einhvern hefðbundinn Gose heldur dettur sú skilgreining bara inn þar sem grunnbjórinn er létt saltur og súr. Síðan þegar við erum komin með perur, ferskjur og blóðbergið með, verður upplifunin í raun miklu meira einhver ofurfrískur og aðgengilegur ávaxtafílíngur sem hentar frábærlega með skaupinu og frameftir,“ segir Árni Long, bruggmeistari hjá Borg.
Hann segir samstarfið við Álf hafa gengið vel o verið afar skemmtilegt. „Þeir hafa mikið verið að brugga úr kartöflum frá Þykkvabæ og því fannst okkur ekki annað koma til greina en að nota kartöflur í Naslið sem koma bara vel út að okkar mati,“ segir Árni.
Eftirtektarvert er hve mikið er lagt í umbúðir drykkjarins. „Við höfum verið í góðu samstarfi við íslenskt myndlistafólk og alltaf fengið nýja listamanneskju til að skreyta umbúðir á samstarfsverkefnum sem þessu. Að þessu sinni fengum við Davíð Tausen til liðs við okkur en hann er einnig þekktur sem MeatSoda og elMeatSoda á samfélgasmiðlum. Við erum hrikalega ánægð með útkomuna og viljum benda sem flestum á að fylgjast með þessum meistara,” bætir Árni við.
Undir þessi orð tekur Andreu Blai Herrero, bruggmeistari hjá Álfi. „Það var frábært að vinna með fagmönnunum frá Borg. Við smullum strax vel saman og það var áhugavert að taka þátt í að skapa þennan skemmtilega bjór sem að neytendur geta fagnað áramótunum með. Ég held að þessi passi afar vel með flugeldunum,“ segir Andreu og hlær.