„Okkar viðskiptavinir geta valið húsgögn alveg eftir sínu höfði, til dæmis lit, viðartegundir og áklæði, því við sérsmíðum allt og öll húsgögn til heimilisnota eru hönnuð og smíðuð hér á landi,“ segir Reynir Syrusson, eigandi Syrusson hönnunarhúss. Fyrirtækið hefur í 11 ár hannað og smíðað húsgögn fyrir íslensk heimili og vinnustaði.
„Við leggjum áherslu á fagmennsku, fágun og góðan efnivið við alla framleiðslu,“ segir Reynir en þrátt fyrir að um vandaða sérsmíði sé að ræða er verðið á húsgögnunum mjög hagstætt. Við bjóðum íslenska hönnuði velkomna með vörur sínar í sýningarrými okkar þar sem við viljum hafa Syrusson hönnunarhús sem hönnunarmiðstöð íslenskra gæðahúsgagna.
Syrusson býður upp á gífurlegt úrval af húsgögnum fyrir heimili en mikil áhersla er lögð á persónuleg samskipti, góða þjónustu og sveigjanleika í hönnun og efnisvali. Markmiðið er ávallt að uppfylla óskir viðskiptavinarins.
Bólstrun hefur alltaf verið stór hluti af hönnunar- og framleiðslustarfi Syrusson. Fyrirtækið býður bæði upp á bólstrun og endurbólstrun. „Smekkur manna er misjafn og þess vegna bjóðum við viðskiptavinum okkar að aðlaga vöru sína að þeirra stíl með breiðu efnisúrvali. Viðskiptavinurinn fær möguleika á að velja úr úrvali áklæða, leðurs eða leðurlíkis, hann fær einnig að velja stífleika í svampi og lit á þræði sem saumaður er í húsgagnið. Með þessum sveigjanleika hefur viðskiptavinurinn möguleika á að aðlaga vöru sína og upplifa þá fjölbreyttu möguleika sem við bjóðum upp á. Með áratuga reynslu í faginu bjóðum við upp á gæðabólstrun og endurbólstrun.“
Auk heimilishúsgagna selur Syrusson mikið af húsgögnum til fyrirtækja og stofnana. Í þeirri sölu koma vönduð innflutt húsgögn oft við sögu og má segja að hæfileg blanda af innfluttum og íslenskum húsgögnum þjóni viðskiptavinum best. Syrusson veitir fyrirtækjum oft heildarlausnir á þessu sviði og sérsmíðar húsgögn inn í rými.
Syrusson er með verslun að Síðumúla 33, Reykjavík. Þar er opið mánudaga til föstudaga frá 9 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Þangað er gaman að koma og skoða allt úrvalið en umfram allt veita starfsmenn faglega ráðgjöf. Þeir koma líka gjarnan í heimsókn til viðskiptavina þegar þörf er á heildarlausn og þá er sest niður, málin rædd og bestu lausnirnar fundnar í sameiningu. Til að óska eftir fundi er gott að hringja í 588-4555 eða senda fyrirspurn á syrusson@syrusson.is.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni syrusson.is